Innlent

Ríkislögreglustjóri gegn áreitni og einelti

Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar
Ríkislögreglustjóri tekur samskiptavanda innan lögreglunnar föstum tökum.
Ríkislögreglustjóri tekur samskiptavanda innan lögreglunnar föstum tökum. vísir/einar
Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri hefur ráðist í fjölmargar aðgerðir gegn einelti og kynferðislegri áreitni í öllum embættum lögreglu á landinu. Haraldur segist hafa ákveðið að fylgja tillögum Finnborgar Salome Steinþórsdóttur vegna niðurstaðna úr rannsókn hennar á vinnumenningu lögreglunnar.



Rannsókn hennar sýndi að tæplega 18% lögreglumanna töldu sig þolendur eineltis í starfi, 25% kvenna og 17% karla. Tæplega 31% kvenna og 4% karla í lögreglunni töldu sig þolendur kynferðislegrar áreitni í lögreglunni. Lögreglumenn sem tóku þátt í rannsókninni bentu á að gerendur væru samstarfsmenn og yfirmenn.

Vandinn er talinn alvarlegur og til viðbótar við aðgerðir ríkislögreglustjóra ákvað innanríkisráðuneyti að fá vinnusálfræðing til að greina samskiptavanda í yfirstjórn lögreglunnar.

Í viðtölum við vinnusálfræðinginn Leif Geir Hafsteinsson sögðu lögreglumenn frá óviðeigandi ummælum vinnufélaga sinna.

Ummælin vísuðu í kynferði og viðkomandi upplifðu þau sem áreitni. Enn hafa niðurstöður greiningar Leifs ekki verið birtar en heimildir Fréttablaðsins herma að rót vandans sé valdabarátta í yfirstjórn lögreglunnar.

Meðal aðgerða ríkislögreglustjóra var að koma á fót fagráði lögreglunnar. Fagráðið er ráð óháðra fagaðila og tekur til umfjöllunar mál er varða beina og óbeina mismunun, kynbundna áreitni, kynferðislega áreitni, kynbundið ofbeldi og einelti innan lögreglunnar.

Þá hefur verið haldið námskeið í stjórnendaþjálfun fyrir stjórnendur innan lögreglunnar. Námskeiðið var haldið í apríl 2015 í samvinnu við Lögregluskóla ríkisins. Ríkislögreglustjóri gaf einnig út leiðbeinandi verklagsreglur um einelti sem voru sendar á alla lögreglustjórana 1. apríl síðastliðinn.

Þá var ákveðið að endurútgefa jafnréttis- og framkvæmdaáætlun lögreglunnar og á næstu dögum fá starfsmenn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fræðslu um góð samskipti á vinnustað, einelti og eðli ágreinings. Fræðslufyrirlestrarnir hafa verið haldnir í öllum öðrum lögregluembættum á landinu á haustmánuðum en það er mannauðsráðgjafarfyrirtækið Hugtak sem hefur haldið utan um þá.

Þá ákvað ríkislögreglustjóri að endurskoða siðareglur lögreglunnar. Í endurskoðuðum siðareglum verður sérstök áhersla lögð á siðferði og samskipti á vinnustaðnum. Að auki verður unnið að því að draga úr neikvæðum viðhorfum sem hafa mælst gagnvart konum í lögreglunni. Til viðmiðs verða siðareglur stjórnarráðsins og Íþrótta- og ungmennafélags Keflavíkur. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×