Innlent

Ríkisendurskoðun gagnrýnir seinagang og samskiptaleysi í málefnum sjúkraflugs

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Þyrla landhelgisgæslunnar í sjúkraflugi árið 2015.
Þyrla landhelgisgæslunnar í sjúkraflugi árið 2015. Vísir/Pjetur
Ríkisendurskoðun gagnrýnir seinagang og samskiptaleysi innanríkisráðuneytis og velferðarráðuneytis í málefnum sjúkraflugs. Þetta kemur fram í nýrri eftirfylgniúttekt um sjúkraflug á Íslandi.

Í skýrslu Ríkisendurskoðunar árið 2013 var fjallað um fyrirkomulag, umfang og þróun sjúkraflugs. Þar var velferðarráðuneytið hvatt til að vanda betur til útboða sjúkraflugs og ljúka vinnu við framtíðarstefnu í sjúkraflutningum. Einnig var innanríkisráðuneytið hvatt til að taka formlega ákvörðun um aðkomu Landhelgisgæslunnar að sjúkraflugi.

Ríkisendurskoðun telur að litill gangur hafi verið í þeim málum sem varða sjúkraflug á undanförnum árum. „Fyrirhuguðu útboði hefur verið frestað og hvorki liggur fyrir framtíðarstefna um sjúkraflug né úttekt á kostum þess og göllum að landhelgisgæslan komi í meira mæli að því,“ segir í frétt á vef Ríkisendurskoðunar.

Þá segir einnig að engar nýjar viðræður hafi átt sér stað milli velferðarráðuneytis, innanríkisráðuneytis og Landhelgisgæslunnar um þessi mál. „Af þeim sökum telur Ríkisendurskoðun rétt að ítreka allar ábendingar sínar frá 2013.“

Eftirfylgniúttekt Ríkisendurskoðunar má lesa í heild sinni hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×