Tónlist

Rihanna sögulega eftirsótt

Hér er sannarlega ekki um neinn aukvisa að ræða.
Hér er sannarlega ekki um neinn aukvisa að ræða.
Poppprinsessan Rihanna setti á dögunum sögulegt met, en hún hefur fyrst allra tónlistarmanna náð að brjóta hundrað milljóna sölumúrinn þegar kemur að stafrænni verslun með plötur hennar í Bandaríkjunum. Hér er verið að tala um niðurhal og spiluð lög á alnetinu.

The Recording Industry Association of America heldur utan um þessar upplýsingar og sendi frá sér tilkynningu þess efnis að hér væri stórmerkilegum áfanga náð. Má segja að Rihanna, sem er tuttugu og sjö ára, hafi verið meira og minna í eldlínunni undanfarinn áratug, en hún hóf innreið sína í skemmtanabransann árið 2005 og hefur líklega sjaldan verið heitari. Til að setja merkilegheitin í samhengi má benda á að Taylor Swift er næst á eftir henni með áttatíu og átta milljón spilanir og Katy Perry er með sjötíu og níu milljónir.

Var það nýjasti smellurinn, B***h Better Have My Money, sem kom Rihönnu yfir hjallann en lagið hefur slegið rækilega í gegn, líkt og flest það sem kemur frá söngkonunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×