Lífið

Rifrildi geta gert ykkur feit

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Ný rannsókn á vegum Institute for Behavioral Medicine Research í Ohio State-háskólanum sýnir fram á að rifrildi geti valdið því að fólk fitni.

Fylgst var með 43, heilbrigðum hjónum í rannsókninni sem voru búin að vera gift í að minnsta kosti þrjú ár. Hjónin þurftu að fylla út könnun sem spurði út í skapgerð og hvort þau hefðu einhvern tímann glímt við þunglyndi. Síðan var hjónunum gefinn fituríkur matur, svipaður og sá sem fæst á hefðbundnum skyndibitastöðum.

Magn kaloría sem hjónin brenndu var mælt á tuttugu mínútna fresti í sjö klukkutíma eftir hverja máltíð. Þá voru líka tekin blóðsýni úr þeim til að mæla insúlínmagn og blóðfitu.

Þá voru hjónin beðin um að ræða eitthvað tiltekið vandamál í sambandinu og reyna að leysa það. Kom þá í ljós að sá aðili í sambandinu sem var fjandsamlegri í úrlausn mála og hafði glímt við þunglyndi brenndi 31 færri kaloríu á klukkustund en hinn aðilinn í sambandinu. Ef þessar kaloríur eru lagðar saman gæti það þýtt um fimm kílóa þyngdaraukningu á ári. Þessir aðila voru líka með meira insúlínmagn í líkamanum sem eykur matarlyst og líkur á offitu. 

Jan Kiecolt-Glaser stjórnaði rannsókninni og segir að streita spili hér stórt hlutverk en áður hefur verið sannað að streita geti haft áhrif á hjartslátt, blóðþrýsting og ónæmiskerfið.

Jan segir að þessar niðurstöður gætu gilt um alla sem eru í fjandsamlegu sambandi þó þeir hafi ekki glímt við þunglyndi. 

„Ef sambandið þitt gengur illa verður það til þess að sá sem á að veita þér stuðning veldur þér mikilli streitu. Fjandsamlegt samband getur einnig haft áhrif á heilsuna hjá fólki sem borðar aðeins hollan mat,“ segir hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×