Lífið

Reynir að dansa súludans ólétt

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikkonunni Zoe Saldana leiddist svo mikið á Washington Dulles-alþjóðaflugvellinum á dögunum að hún ákvað að reyna fyrir sér í súludansi í sporvagni með eiginmanni sínum, Marco Perego.

Zoe og Marco eiga von á sínu fyrsta barni og gekk leikkonunni ekkert sérstaklega vel að munda súluna með óléttukúluna framan á sér.

„#Súludans er erfiður undir þessum kringumstæðum,“ skrifar Zoe við myndband af atvikinu sem hún deilir á Instagram-síðu sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×