Innlent

Reykjanesbraut lokað vegna bílslyss

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Reykjanesbraut verður lokuð í norðurátt í óákveðinn tíma.
Reykjanesbraut verður lokuð í norðurátt í óákveðinn tíma.
Reykjanesbraut verður lokuð í norðurátt um óákveðinn tíma vegna umferðaróhapps. Umferð er beint um Strandgötu.

Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins missti ökumaður stjórn á bíl sínum og valt. Hann var einn í bílnum. Unnið er að því að koma bílstjóranum undir læknishendur.

Uppfært 18.09 Lögreglan hefur lokið störfum á vettvangi slyssins. Vegurinn er því opinn á nýjan leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×