Lífið

Renée svarar fyrir sig

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Renée á Elle Women in Hollywood-verðlaununum.
Renée á Elle Women in Hollywood-verðlaununum. vísir/getty
Það varð allt vitlaust á internetinu í gær eftir að leikkonan Renée Zellweger mætti á Elle Women in Hollywood-verðlaunin í Beverly Hills á mánudagskvöldið. Voru margir sammála um að andlit Renée væri búið að taka það miklum breytingum að hún hlyti að hafa lagst undir hnífinn.

„Ég er ánægð að fólki finnist ég líta öðruvísi út! Ég er að lifa öðruvísi, hamingjusamara og meira fullnægjandi lífi og ég er himinlifandi að það sjáist,“ segir Renée í yfirlýsingu sem hún sendir tímaritinu People.

Renée segir að umræðan um útlit hennar sé kjánaleg en hún vilji samt svara henni því fólk sé á höttunum eftir sannleika sem er ekki til. Þá segist hún ekki hafa fengið frið síðan fólk fór að velta sér upp úr útliti hennar.

„Vinir mínir segja að ég líti friðsamlega út. Ég er heilbrigð. Ég stóð mig ekki vel í heilbrigðum lífsstíl lengi vel. Ég tók að mér alltof mikla vinnu og leyfði mér ekki að hugsa um sjálfa mig. Í staðinn fyrir að staldra við og hlaða batteríin hélt ég áfram að hlaupa þangað til ég átti enga orku og tók slæmar ákvarðanir um hvernig ég ætti að fela þreytuna. Ég gerði mér grein fyrir þessari ringulreið og ákvað að gera hlutina öðruvísi,“ segir Renée. Hún segir að samband sitt við kærastann Doyle Bramhall hafi hjálpað henni að slaka á.

„Ég tók að mér vinnu sem gerði mér kleift að staldra við, búa til heimili, elska einhvern, læra nýja hluti, vaxa sem skapandi manneskja og þroskast sem ég,“ segir leikkonan. Hún segir eðlilegt að útlitið breytist þegar aldurinn færist yfir.

„Kannski lít ég öðruvísi út. Hver gerir það ekki þegar þeir eldast?! En ég er öðruvísi. Ég er hamingjusöm.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×