Bílar

Renault eykur framleiðsluna í Marokkó

Finnur Thorlacius skrifar
Í verksmiðju Renault í Tangier.
Í verksmiðju Renault í Tangier.
Renault, ásamt fjölmörgum íhlutaframleiðendum, ætla að fjárfesta fyrir 129 milljarða króna í Marokkó og reisa einskonar “iðnaðarmiðstöð” þar sem framleiddir verða íhlutir í Renault og Dacia bíla. Renault á tvær bílaverksmiðjur í Marokkó, þ.e. í Tangier og Casablanca.

Verksmiðjan í Tangier er stærsta bílaverksmiðja í N-Afríku og eftir að hún verður stækkuð og iðnaðarmiðstöðin verður tilbúin munu verða framleiddir 400.000 bílar á ári í henni. Í þeim báðum eru nú framleiddir Dacia bílar, Dokker, Lodgy og Sandero í Tangier og Logan og Sandero í Casablanca.

Að minnsta kosti 15 íhlutaframleiðendur ætla að taka þátt í uppbyggingu iðnaðarmiðstöðvarinnar og leggja til hennar fjármagn. Bílaiðnaður er mjög vaxandi í Marokkó og PSA/Peugoet-Citroën ætlar að byggja þar nýja bílaverksmiðju sem kosta mun 79 milljarða króna og þar á að framleiða 200.000 bíla á ári.

Það eru ekki bara bílaframleiðendur sem þyrpst hafa til Marokkó á síðustu árum og er franski flugvélaframleiðandinn Bombardier þar á meðal. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×