Innlent

Réðust inn á heimili manns í Garðabæ og slógu með exi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Játning liggur fyrir í málinu og rannsókn langt komin að sögn Kristjáns Inga.
Játning liggur fyrir í málinu og rannsókn langt komin að sögn Kristjáns Inga. Vísir/Sigurjón
Fjölmennt lið lögreglu var kallað út að heimili í Garðabænum á fjórða tímanum aðfaranótt laugardags þar sem íbúi óttaðist um öryggi sitt. Tveir karlmenn og kona höfðu brotist inn á heimili mannsins en þau töldu sig eiga óuppgerðar sakir við manninn.

Kristján Ingi Kristjánsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við Vísi að íbúinn hafi verið sleginn með exi, bitlausu hliðinni.

Mennirnir tveir og konan voru handtekin en síðar sleppt. Játning liggur fyrir í málinu og rannsókn langt komin að sögn Kristjáns Inga.

Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is Fullum trúnaði er heitið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×