Lífið

Rassakláði Jennifer Lawrence varð hljóðmanni næstum því að bana

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jennifer Lawrence fór á kostum.
Jennifer Lawrence fór á kostum.
Það er ekki á hverjum degi sem maður heyrir Hollywood leikkonu tala um að klóra sér í rassinum. Það gerði aftur á móti Jennifer Lawrence í spjallþætti Graham Norton á dögunum.

Lawrence var gestur hjá Bretanum ásamt Chris Pratt og Jamie Oliver. Lawrence og Pratt fara með aðalhlutverkið í myndinni Passengers sem verður frumsýnd milli jóla og nýárs.

Norton kom leikkonunni á óvart með því að rifja upp óheppilegt atvik á Hawai þegar hún var að taka upp myndina Hunger Games.

„Við vorum að taka upp á Hawai og í kringum heilaga steina sem fólk má alls ekki setjast ofan á, þú mátt semsagt ekki setja kynfærin þín nálægt þessum steinum,“ sagði Lawrence í þættinum.

„Ég var alltaf í blautbúningi og það var svo gott að klóra sér á rassinum á þessum steinum. Eitt sinn losnaði steinn og rúllaði niður fjallið og drap næstum því hljóðmanninn okkar,“ sagði leikkonan en hér að neðan má sjá myndband af viðtalinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×