Lífið

Rappari með broskalla

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Broskallar eru nýjasta verkefni rapparans
Broskallar eru nýjasta verkefni rapparans Skjáskot apple.com
Póstmóderníski rappgrallarinn Lil B The Based God er nýbúinn að búa til sitt eigið app sem gerir notendum iPhone kleift að senda broskalla sín á milli en broskallarnir eru allir hannaðir af Lil B sjálfum.

Lil B er líklega vinsælasti tónlistarmaðurinn á netinu en hann hefur mikið fylgi meðal tónlistaráhugamanna og ungu kynslóðarinnar á netinu.

Ásamt því að gefa út ógrynni af tónlist svo sem 500 laga plötu, þá hefur Lil B skrifað bók og verið boðið að koma og tala í háskólum víðs vegar um Bandaríkin. Kappinn er aðeins 25 ára að aldri þannig að geri aðrir betur.

Hér fyrir neðan má heyra sígilt lag með kappanum en það fjallar einmitt um upplýsingaöldina.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×