Íslenski boltinn

Ragnar Már genginn til liðs við ÍA á láni út tímabilið

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Gunnlaugur fékk í dag liðsstyrk frá Brighton.
Gunnlaugur fékk í dag liðsstyrk frá Brighton. Vísir/Vilhelm
ÍA fékk í dag Ragnar Már Lárusson á láni frá enska Championship-liðinu Brighton út tímabilið.

Ragnar sem er 18 árs gamall gekk til liðs við Brighton frá ÍA fyrir tveimur árum síðan en hann hefur leikið með unglinga- og varaliði enska félagsins undanfarin tvö ár.

Ragnar sem hefur leikið 18 leiki fyrir yngri landslið Íslands og skorað í þeim fjögur mörk mun ljúka tímabilinu með ÍA en Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA, var skiljanlega sáttur með liðsstyrkinn.

„Það er virkilega ánægjulegt að fá Ragnar til liðs við okkur, þrátt fyrir ungan aldur hefur fengið fína reynslu í Englandi og verður gaman að sjá hann í leikmannahóp okkar.  Þetta bar fljótt að en þegar Brighton viðraði þann möguleika að hann skyldi enda tímabilið hjá okkur var þetta aldrei spurning,“ sagði Gunnlaugur Jónsson í samtali við ia.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×