Raggi Sig áritaði treyju fyrir langveikan dreng á aðfangadegi Jakob Bjarnar skrifar 29. júní 2016 16:43 Fótboltahetjan með gullhjartað skorar gegn Englendingum.
Foreldrar Benjamíns Nökkva Björnssonar heitins minnast nú, í kjölfar frækins sigurs á Englendingum í fótboltanum, góðrar stundar þegar knattspyrnuhetjan Ragnar Sigurðsson kom heimsókn. Það var sannkölluð gleðistund í lífi hins langveika drengs sem hafði mikinn áhuga á fótbolta.Skipti fjölskylduna miklu máliBjörn Harðarson segir, í samtali við Vísi, þetta hafa skipt þau fjölskylduna verulega miklu máli. Og hann rifjar upp þessa stundu með því að birta myndir af því þegar Ragnar kom í heimsókn á aðfangadag sérstaklega til að árita treyju og bolta fyrir Benjamín Nökkva. „Enn einu sinni óvæntur glaðningur fyrir Benjamín. Hemmi Hreiðar kom um daginn og gaf Benjamín meðal annars Landsliðstreyju frá Ragnari Sigurðssyni. Í dag aðfangadag hringdi Raggi Sig í Benjamín og vildi koma til hans og árita treyjunni. Í leiðinni áritaði hann bolta sem Birkir Bjarna og Gylfi höfðu áritað og gaf Nikulási ráð fyrir framtíðina. Frábær gjöf frá Ragga að gleðja okkur um jólin,“ skrifar Björn á Facebook og lætur broskall fylgja.Feðgarnir og fótboltahetjan stilla sér upp fyrir myndatöku. Benjamín og Raggi með áritaða treyjuna. Mikil gleðistund í lífi hins langveika drengs, þegar landsliðsmaðurinn kom til að finna hann á aðfangadegi.Fótboltahetjan með gullhjartaðÞetta var árið 2013, númerið sem kom upp á símann var erlent. Á línunni var Raggi sig og spurði hvort hann mætti koma í heimsókn rétt fyrir matinn. „Og hitta meistarann Benjamín Nökkva Björnsson. Raggi og pabbi hans gáfu sér tíma á aðfangadag til að eiga stund með okkur. Yndislegur drengur og þvílíkur leikur á móti Englendingum,“ segir Björn og hann velkist ekki í vafa um að hjarta úr gulli hafi átt sinn þátt í að þessi stórkostlegi árangur náðist. Björn er sannfærður um að Benjamín hafi verið á leiknum með einum hætti eða öðrum og haft sín áhrif.Ragnar besti maður umferðarBenjamín Nökkvi andaðist 1. maí 2015 og það er gaman að geta minnst hans nú í kjölfar hins frækna sigurs á Englendingum, en þar var Ragnar tvímælalaust fremstur meðal jafningja. Hann átti stórleik og nú er verið að kjósa um besta mann umferðarinnar á netinu. Þar er Ragnar efstir á blaði og skal engan undra. Að sögn föður Benjamíns Nökkva var fótboltinn aðaláhugamál Benjamíns, og fóru nánast allar stundir hans í knattspyrnuna. „Vegna veikinda náði hann mjög lítið að vera í skóla en lærði til dæmis að lesa á fotbolta.net sem hann las alla daga allar fréttir. Dagurinn okkar fór líka í að fylgjast með fótbolta ræða fótbolta, fara í bíltúr að hitta bestu vini hans í Jóa Útherja og spjalla um fótbolta. Keypti hans sér til dæmis allar treyjur sem voru til í hans stærð fyrir HM síðast og sé ég hann fyrir mér hafa gert eitthvað svipað núna. Hann fylgdist með flestum deildum í heiminum og neðri deildum líka,“ segir Björn.Var mikill FylkismaðurRaggi Sig var ekki í neinu sérstöku uppáhaldi þar sem Benjamín fylgdist grannt með flestum íslenskum landsliðsmönnum.Raggi Sig áritar bolta fyrir Benjamín Nökkva.„Ég man ekki hvað var til þess að þetta kom til, mögulega man ég rétt að Hemmi talaði við Ragga. Allavega var það þannig að Benjamín var mikill Árbæingur og og mikill Fylkismaður og var meðal annars heiðursgestur við vígslu stúkunnar. Þannig að hluta til var það Fylkistengingin sem hafði þarna áhrif. Það sem ég get sagt og veit að ef Benjamín væri hérna mundi hann upplifa það sama. Þar sem það var svo yndislegt að fá Ragga þarna í heimsókn á aðfangadag þá er það auðvita sérlega ánægjulegt að sjá hann spila svona svakalega vel á móti Englendingum. Ég finn alltaf mjög sterkt fyrir Benjamín þegar það eru mikilvægir leikir eins og nú á EM eins og þegar Liverpool er að spila.“Harður Liverpoolmaður og snéri föður sínumBenjamín hélt sem sagt með Liverpool og er það fremur löng saga að segja af því hvernig það var til komið, að sögn föður hans. „Það tengist kveðjum sem hann fékk bara nokkra mánaða veikur inn á spítala frá mörgum Liverpool-mönnum sem þekktu hann ekki neitt og öllum kveðjum fylgdi YNWA – slagorð sem á nú frekar vel við hjá okkur Íslendingum í dag. Ég í raun, eins og bróðir hans, hélt með Man U á þessum tíma, en fljótlega eftir að Benjamín þróaði með sér svona mikinn fótboltaáhuga og Liverpool-áhuga fann ég hvað Liverpool hafði orðið togað fast í mig. Þá vegna þess hversu falleg saga er á bakvið hvernig hann varð Liverpool maður,“ segir Björn og brosir: Landsliðsmennirnir Jóhann Berg Guðmundsson og Aron Jóhannsson voru meðal þeirra sem heimsóttu Benjamín.„Þannig að í dag er ég sennilega einn af fáum sem hefur fært sig á milli þessara tveggja liða í stuðning og það er ekki leið tilbaka.“Benjamín hitti RonaldoBjörn segir að Benjamín hafi hitti Ronaldo og Real Madrid-liðið einu sinni, sem var frábært. „En, þetta símtal og heimsókn Ragga á aðfangadag óvænt og símtal og heimsókn frá Jóa Berg á sínum tíma sýndi það svo sterkt hvað þessir strákar allir hafa fallegt hjartalag og er það þar að leiðandi mun persónulegra og svo ómetanlegt og gerir mann svo þakklátan.“ Jóhann Berg Guðmundsson, félagi Ragnars í landsliðinu, og bandaríski landsliðsmaðurinn Aron Jóhannsson heimsóttu Benjamín á meðan heimsmeistarmótið í fótbolta stóð yfir sumarið 2014. Björn segist alveg klár á því að Benjamín heitinn hefði farið beint niður í Jóa Útherja til að taka umræðuna um hvað Raggi væri besti miðvörður í heimi og velt fyrir sér með þeim hvort að Liverpool mundi ekki kaupa hann þar sem Kolo og Skrtel væri á förum,“ segir Björn: „YNWA!“Benjamín og fjölskylda hans komu fram í Íslandi í dag á sínum tíma og sögðu þar sögu sína. Þar var Benjamín lýst sem jákvæðum og skemmtilegum dreng sem sá alltaf eitthvað gott við hvern einasta dag. Innslag Íslands í dag um Benjamín Nökkva má sjá í spilaranum hér að ofan.
Tengdar fréttir „Gangandi kraftaverk“ Benjamín Nökkvi greindist með alvarlegan sjúkdóm og var honum ekki hugað líf. Þrátt fyrir þrálát veikindi alla hans ævi stendur hann sig eins og hetja og lítur lífið björtum augum. 26. febrúar 2014 21:45 Er þetta tækling Evrópumótsins til þessa? | Myndband og myndir Ragnar Sigurðsson átti stórkostlegan leik í miðju íslensku varnarinnar í kvöld og var heldur betur lykilmaður að Íslandi tókst að senda England heim af Evrópumótinu. 27. júní 2016 21:01 Einkunnir gegn Englandi: Ragnar bestur með tíu í einkunn Ísland er komið í átta liða úrslit á EM í Frakklandi eftir 2-1 sigur á Englandi á Allianz Riviera í Nice í kvöld. Kolbeinn Sigþórsson skoraði sigurmarkið. 27. júní 2016 21:07 Liverpool, Tottenham og Leicester sögð vilja fá Ragga Sig Ragnar Sigurðsson gæti spilað í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð en hann er eftirsóttur eftir frammistöðuna á EM. 29. júní 2016 08:33 Mest lesið Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Segir lág laun leikskólakennara mýtu Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent Fleiri fréttir Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Sjá meira
„Gangandi kraftaverk“ Benjamín Nökkvi greindist með alvarlegan sjúkdóm og var honum ekki hugað líf. Þrátt fyrir þrálát veikindi alla hans ævi stendur hann sig eins og hetja og lítur lífið björtum augum. 26. febrúar 2014 21:45
Er þetta tækling Evrópumótsins til þessa? | Myndband og myndir Ragnar Sigurðsson átti stórkostlegan leik í miðju íslensku varnarinnar í kvöld og var heldur betur lykilmaður að Íslandi tókst að senda England heim af Evrópumótinu. 27. júní 2016 21:01
Einkunnir gegn Englandi: Ragnar bestur með tíu í einkunn Ísland er komið í átta liða úrslit á EM í Frakklandi eftir 2-1 sigur á Englandi á Allianz Riviera í Nice í kvöld. Kolbeinn Sigþórsson skoraði sigurmarkið. 27. júní 2016 21:07
Liverpool, Tottenham og Leicester sögð vilja fá Ragga Sig Ragnar Sigurðsson gæti spilað í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð en hann er eftirsóttur eftir frammistöðuna á EM. 29. júní 2016 08:33