Lífið

Rafrænni Árstíðir en áður

Ragnar Ólafsson, Daníel Auðunsson, Gunnar Már Jakobson og Karl Pestka skipa Árstíðir.
Ragnar Ólafsson, Daníel Auðunsson, Gunnar Már Jakobson og Karl Pestka skipa Árstíðir. Vísir/Matt Eisman
Hljómsveitin Árstíðir gefur út í dag sína þriðju breiðskífu í fullri lengd sem hefur fengið nafnið Hvel. „Hinar plöturnar voru meira akústik, en þessi plata er stúdíóplata og við leyfðum okkur að leika okkur með alls kyns hljóðheima og uppgötva okkur á ný,“ segir Ragnar Ólafsson, söngvari og píanóleikari sveitarinnar.

„Meðlimir hafa að nokkru leyti fetað nýjar slóðir á nýju plötunni og gætir nú rafrænna áhrifa meira en á fyrri breiðskífum, auk þess sem trommuásláttur setur sinn svip á nokkur lög plötunnar,“ segir Ragnar, en á fyrri plötum sveitarinnar var lítið um trommu- og bassaleik. „Lögin eru öll mjög ólík innbyrðis og fékk hvert þeirra sína meðhöndlun, en þau mynda samt sem áður heild,“ segir hann.

Upptökustjóri plötunnar var Styrmir Hauksson, sem hefur unnið með GusGus, Bloodgroup og fleirum. „Styrmir fékk svo mjög merkilegan mann að nafni Glenn Schick til að hljóðjafna plötuna fyrir okkur, en hann er mjög þekktur í rappheiminum úti. Hann hefur reyndar líka unnið með Justin Bieber sem er kannski mælikvarði á hversu eftirsóttur hann er,“ segir Ragnar.

Platan var fjármögnuð með hópfjármögnun á Kickstarter og var markmiðinu náð á aðeins nokkrum dögum. „Ég held að þessi fjármögnun sé framtíðin, þarna ákveður fólkið sjálft hvort það vill heyra tónlistina eða ekki,“ segir hann.

Til þess að fagna útgáfudeginum verða tónleikar haldnir á Rosenberg í kvöld klukkan 22.00.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×