Bílar

Rafmagnsleigubílum í London fjölgar

Finnur Thorlacius skrifar
TX-5 rafmagnsleigubíll frá London Taxi Company.
TX-5 rafmagnsleigubíll frá London Taxi Company.
Svörtu kubbslegu leigubílarnir í London verða brátt allmiklu umhverfisvænni  því mörgum þeirra hefur verið skipt út fyrir rafmagnsbíla og verður þeim gömlu skipt út í stórum stíl á næstu árum.

London Taxi Company, sem lengi hefur framleitt þá leigubíla sem einkenna Lundúni, er í eigu kínverska bílaframleiðandans Geely, sem reyndar á einnig Volvo. Fyrirtækið framleiðir nú þennan TX4 leigubíl sem ætlað er að leysa af hólmi eldri leigubíla borgarinnar og von er á næstu gerð bílsins, TX5 innan þriggja ára.

Meiningin er að framleiða allt að 36.000 svona bíla á ári og með því tífalda framleiðsluna frá því sem nú er. Þessir bílar eru einnig ætlaðir í sölu í öðrum löndum en Bretlandi.

Þeir eru þó ekki einu rafmagnsleigubílarnir sem sjást í London nú því allmargir breskir Frazer-Nash Metrocab rafmagnsbílar eru þar einnig í þjónustu. Bílar Frazer-Nash er með svipaðan drifbúnað og TX4 og TX5 bílarnir, stórar rafhlöður og litla brunavél sem tekur við þegar rafhleðslan klárast. Drægni þeirra er svipuð, eða um 560 kílómetrar. 

Frazer-Nash, breskur rafmagnsleigubíll.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×