Leikjavísir

QuizUp brátt fáanlegur á Android

Bjarki Ármannsson skrifar
Þorsteinn B. Friðriksson, framkvæmdastjóri Plain Vanilla, og nokkrir starfsmenn.
Þorsteinn B. Friðriksson, framkvæmdastjóri Plain Vanilla, og nokkrir starfsmenn. Mynd/Plain Vanilla
Stefnt er á að spurningaleikurinn geysivinsæli QuizUp verð gefinn út á Android-stýrikerfinu í byrjun mars. 

Þetta segir í frétt á mbl.is, en það er íslenska fyrirtækið Plain Vanilla sem gefur leikinn út.

QuizUp hefur náð geysimiklum vinsældum á snjallsímum og spjaldtölvum Apple og hefur lengi staðið til að gefa notendum Android færi á að prufa þekkingu sína í hinum ýmsu efnum. Ýmir Örn Finnbogason, fjármálastjóri Plain Vanilla, segir að af því verði á fyrstu vikum marsmánuðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×