Íslenski boltinn

Punyed missir af bikarleiknum vegna landsliðsverkefna

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Pablo Punyed er salvadorskur landsliðsmaður.
Pablo Punyed er salvadorskur landsliðsmaður. vísir/ernir
Pablo Punyed, miðjumaður Íslandsmeistara Stjörnunnar, verður ekki með liðinu á miðvikudaginn þegar það mætir Leikni í 32 liða úrslitum Borgunarbikarsins.

Þetta staðfestir Victor Ingi Olsen, rekstarstjóri knattspyrnudeildar Stjörnunnar, við Vísi, en Punyed var valinn í hóp salvadorska landsliðsins sem lék æfingaleik við Hondúras í gær og mætir Síle í Rancagua á föstudaginn.

Punyed spilaði ekki á móti Hondúras þar sem hann var á Kópavogsvelli að spila með Stjörnunni í Pepsi-deildinni. Ekki er um að ræða Alþjóðlega leikdaga og þurfa Stjörnumenn því ekki að sleppa honum.

Langt frá Síle til Íslands

Hann flýgur engu að síður út á morgun og verður í hópnum gegn Síle, en salvadorska landsliðið er að undirbúa sig fyrir tvo leiki gegn St. Kitts og Nevis í undankeppni HM 2018 og svo Gullbikarinn sem hefst í byrjun júlí.

Leikirnir gætu því orðið fleiri sem Punyed missir af í Pepsi-deildinni, í Borgunarbikarnum og mögulega í Meistaradeildinni.

Stjarnan mætir Fjölni á sunnudagskvöldið en Punyed verður þá í besta falli nýkominn heim eftir langt flug frá Síle, en það er 12.000 kílómetrum frá Íslandi.

Ísland spilar aðeins einn landsleik, á móti Tékklandi, í næsta landsleikjafríi og er því er aðeins gert stutt hlé á deildinni. El Salvador á fyrir höndum tvo leiki í undankeppni EM 2018, en sá síðari verður spilaður 16. júní.

Daginn áður á Stjarnan að spila við Fylki í Pepsi-deildinni og ólíklegt að Salvadorinn verði þar fái hann kall í landsliðið í þessa leiki.

Þrír leikir í Gullbikarnum

Gullbikarinn, þar sem landslið Mið-Ameríku, Norður-Ameríku og Karíbahafsins berjast, hefst svo 7. júlí, en þar á El Salvador þrjá leiki fyrir höndum í riðlakeppninni.

Verði Punyed valinn í hópinn fyrir Gullbikarinn fer hann út í byrjun júlí og verður að minnsta kosti til 14. júlí þegar El Salvador spilar síðasta leikinn í riðlakeppninni gegn Jamaíka.

Hann myndi þá missa af leik í átta liða úrslitum bikarsins komist Stjarnan þangað, leik gegn Val á heimavelli í deildinni 10. júlí og fyrri leik Stjörnunnar í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar.

Leikjadagskrá El Salvador:

5. júní gegn Síle á útivelli - vináttuleikur

11. júní gegn St. Kitts og Nevis á útivelli - undankeppni HM 2018

16. júní gegn St. Kitts og Nevils á heimavelli - undankeppni HM 2018

8. júlí gegn Kanada - Gullbikarinn

11. júlí gegn Kostaríka - Gullbikarinn

14. júlí gegn Jamaíku - Gullbikarinn

Leikir sem Punyed gæti misst af með Stjörnunni:

3. júní gegn Leikni - Borgunarbikarinn

15. júní gegn Fylki á útivelli - Pepsi-deildin

5./6. júlí í 8 liða úrslitum bikarsins

10. júlí gegn Val á heimavelli - Pepsi-deildin

14./15. júlí í forkeppni Meistaradeildarinnar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×