Lífið

Púað á Kim og Kanye á tískuvikunni í París

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Kim og Kanye ásamt dóttur þeirra, North.
Kim og Kanye ásamt dóttur þeirra, North. vísir/getty
Púað var á stjörnuhjónin Kim Kardashian og Kanye West er þau mættu á tískusýningu Lanvin á tískuvikunni í París þann 25. september síðastliðinn.

Samkvæmt New York Post voru það ljósmyndarar sem púuð á parið því þeir voru pirraðir yfir því að Kim og Kanye mættu á sýninguna fjörutíu mínútum of seint. Atvikið má sjá á meðfylgjandi myndbandi sem var birt á síðu Associated Press.

Kanye var ekki skammt yfir þessu og varði sig og konu sína. Sagði hann að Alber Elbaz, hönnuður Lanvin, hefði beðið um að hitta sig og að þau væru alls ekki sein.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×