Fótbolti

PSG deildarbikarmeistari í Frakklandi

Edinson Cavani
Edinson Cavani Vísir/Getty
Paris Saint-German tryggði sér deildarbikarmeistaratitilinn með 2-1 sigri á Lyon í úrslitaleik deildarbikarsins í kvöld. Edinson Cavani var á skotskónum í fjarveru Zlatan Ibrahimovic.

PSG sem stefnir hraðbyri að vinna frönsku deildina annað árið í röð vann deildarbikarinn í fjórða skiptið í sögu félagsins í kvöld. PSG er sigursælasta félagið í sögu keppninnar eftir sigurinn í kvöld en félagið vann keppnina síðast árið 2008.

Cavani skoraði eftir aðeins þrjár mínútur eftir góða sendingu frá Maxwell. Cavani var svo aftur á ferðinni stuttu fyrir lok fyrri hálfleiks af vítapunktinum þar sem hann kom PSG í 2-0. Alexandre Lacazette minnkaði muninn fyrir Lyon í seinni hálfleik en lengra komust leikmenn Lyon ekki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×