Bílar

PSA aftur til Bandaríkjanna

Finnur Thorlacius skrifar
Hin þrjú bílamerki PSA Peugeot Citroën bílasamstæðunnar.
Hin þrjú bílamerki PSA Peugeot Citroën bílasamstæðunnar.
PSA Peugeot Citroën hefur ekki selt bíla sína í Bandaríkjunum síðan árið 1991, eða í 27 ár. Sala Citroën bíla hætti reyndar í Bandaríkjunum árið 1974 og Peugeot dró sig endanlega frá þeim markaði árið 1991 og hafði þá selt bíla sína í landinu í 31 ár.

Samkvæmt ummælum frá forstjóra Peugeot, Jean Philippe Imparato, er þó stefnan tekin á að selja aftur bíla frá bílasamstæðunni þar í landi, en það verður þó ekki alveg á næstunni og gætu liðið allt að 10 ár þangað til það raungerist. Alls ekki er víst hvaða bílgerðir yrðu fyrir valin fyrst um sinn, en ekki þykir ólíklegt að það yrðu DS lúxusbílar PSA.

Undirbúningur er hafinn hjá PSA varðandi endurkomu á bandaríska bílamarkaðinn og réð PSA fyrrum yfirmann Nissan og TrueCar, Larry Dominique til að stjórna þeirri endurkomu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×