Lífið

Prumpið var svo einstakt að úr varð sinfónía

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lagið er einstaklega skemmtilegt.
Lagið er einstaklega skemmtilegt. vísir/getty
Einn notandi Reddit sem gengur undir nafninu Lozzobear gerði sér lítið fyrir og gerði lag úr prumpinu sínu. Það var eitt sérstakt prump sem vakti athygli mannsins og hann stóðst ekki mátið.

„Bróðir minn flutti í burtu og ég fór að sakna hans með tímanum. Því byrjaði ég að senda honum hljóðbúta með prumpinu mínu, svona til að láta hann vita að ég elskaði hann,“ segir Lozzobear á Reddit en hann hefur dreift laginu á YouTube.

„Ég vissi um leið þegar þetta einstaka prump kom út úr mér að það var eitthvað sérstakt við það.“

Hér að neðan má hlusta á lagið góða. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×