Lífið

Prinsinn og Jónas Sig opna Havarí

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Jónas Sig og Prins Póló leiða saman hesta sína.
Jónas Sig og Prins Póló leiða saman hesta sína. Vísir
Á laugardag opnar Havarí sem er menningarmiðstöð hjónanna Svavars Péturs Eysteinssonar og Berglindar Hasler á sveitabænum Karlsstöðum í Djúpavogshreppi. Svavar er auðvitað flestum þekktur sem alter-egó sitt Prins póló og það er því við hæfi að opnunarhelgi miðstöðvarinnar verði skreytt tónleikum með honum. Hann verður þó ekki einn á ferð því Jónas Sigurðsson verður honum til halds og trausts á sviðinu á laugardagskvöldið.

„Jónas er að snúa til baka úr sjálfskipaðri útlegð á Spáni. Hann hefur verið í kaffibindindi allan tímann og ætlar að rjúfa það hér á laugardaginn. Við erum með svo helvíti gott kaffi hérna nefnilega,“ segir Svavar sem unnið hefur hörðum höndum að því að innrétta hlöðu bæjarins upp á nýtt svo halda megi þar ýmsa menningarviðburði.

„Við verðum bara tveir á laugardaginn. Við ætlum standa saman á sviði og hrista lög okkar einhvern veginn saman.“

Svavar og Berglind hafa unnið dag og nótt við það að breyta hlöðu sveitabæjarins í menningarmiðstöðina Havarí.Vísir/Svavar Pétur
Fullt veitingarleyfi fyrir 100 manns

Havarí er með fullt veitingaleyfi og verður því í senn kaffihús, skemmtistaður, veitingastaður, sýningarsalur fyrir listaverk og svo auðvitað nýr staður til tónleikahalds. Staðurinn er með leyfi fyrir 100 manns og er Prinsinn á fullu að setja saman dagskrá fyrir sumarið en reikna má með tónleikum þar frá FM Belfast, Markúsi Bjarnasyni og Páli Ragnari Pálssyni ásamt eistnesku söngkonunni Tui Hirv.

„Hérna verður því ekki sveitaballafílingur af því leyti að hér verða ekki haldin flöskuböll, enda ekki þörf á því með opinn bar. Hér er líka veitingastaður sem leggur áherslu á steiktan og djúsi grænmetismat og þar eru Bulsurnar okkar í forgrunni.“

Fólk þarf því ekki að mæta með sitt eigið sveitasnakk, eins og landinn var oft kallaður í sveitinni hér í gamla daga. Eina sveitasnakkið á borðstólnum verður það sem Prinsinn og Berglind búa til sjálf úr rófum.

Framhald af Havarí í Reykjavík

„Þetta verður einhvers konar veitingastaður, menningarmiðstöð og viðburðarrými. Þetta verður einhvers konar framhald af því sem við vorum með hérna fyrir nokkrum árum síðan í miðbæ Reykjavíkur. Við dustuðum rykið af því nafni og þetta er í raun framhald af því. Hérna verða alls kyns uppákomur. Allt frá brúðkaupum, þorrablótum og ýmis konar gjörningum.“

Prinsinn tekur ekki fyrir það að einhvern tíma verði haldin tónlistarhátíð á Karlsstöðum enda sé þar nóg af túnum sem megi tjalda á. Í júlí ætlar hann svo að troða upp í Havarí á hverjum degi klukkan fjögur yfir vöfflukaffi.

Miðar á tónleikana á laugardag eru til sölu á tix.is.


Tengdar fréttir

MC Póló krefst diskókúlu

Þær eru misjafnar kröfur stjarnanna þegar kemur að tækjabúnaði. Prins Póló bað bara um einn hlut fyrir partý á Djúpavogi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×