Lífið

Poppprins með dólgslæti

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Justin Bieber lætur illa þessa dagana
Justin Bieber lætur illa þessa dagana Vísir/Getty
Poppprinsinn Justin Bieber komst enn og aftur í kast við lögin síðastliðinn föstudag, þegar hann var tekinn fyrir ofsaakstur á fjórhjóli.

Var Bieber að keyra um í heimabæ sínum Perth County í Ontario, Kanada, þegar hann lendir í árekstri við lítinn sendiferðabíl. Reiddist söngvarinn mjög, stökk af hjólinu og réðst að ökumanni sendiferðabílsins.

Þegar lögregla kom á staðinn var poppprinsinn handtekinn, en honum var sleppt svo skömmu síðar. Á hann yfir höfði sér ákæru fyrir ofsaakstur og líkamsárás.

Þess má geta að Bieber er á tveggja ára skilorði fyrir að hafa kastað eggjum í hús nágranna síns og var hann dæmdur til þess að sitja reiðistjórnunarnámskeið. Einnig hefur hann verið handtekinn fyrir fíkniefnbrot og óspektir á almannafæri.

Talsmaður söngvarans neitar að tjá sig um málið að svo stöddu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×