Lífið

Polly Bergen látin 84 ára

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Polly Bergen átti langan feril.
Polly Bergen átti langan feril.
Leikkonan Polly Bergen lést á laugardaginn 84 ára að aldri.

Bergen er líklega þekktust fyrir hlutverk sitt í hinum sígilda spennutrylli Cape Fear og sem fyrsti kvenkyns forsetinn í myndinni Kisses for My President. Bergen stjórnaði einnig The Polly Bergen Show í bandarísku sjónvarpi á sjötta áratugnum.

Bergen reykti mikið en lungnaþemba hafði hrjáð hana á níræðisaldri.

Starfsferill Bergen spannaði meira en 60 ár en hún var líka með hlutverk í þáttum eins og The Sopranos og Desperate Housewives.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×