Fótbolti

Platini útilokar ekki að UEFA-löndin sniðgangi HM verði Blatter endurkjörinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Michel Platini, forseti UEFA og Sepp Blatter.
Michel Platini, forseti UEFA og Sepp Blatter. Vísir/Getty
Michel Platini, forseti UEFA, segir að mikil óvissa verði um framhald samvinna UEFA og FIFA fari svo að Sepp Blatter verði kosinn forseti FIFA fimmta kjörtímabilið í röð.

Aðildarlönd UEFA ætla að styðja jórdanska prinsinn Ali bin al Hussein á móti Sepp Blatter í forsetakosningum FIFA en það kom í ljós á fundi fulltrúa evrópsku sambandanna í dag.

„Ef herra Blatter vinnur þessar kosningar þá munu aðildarlönd UEFA hittast á fundi í Berlín til að ræða enn frekar samstarfið á milli UEFA og FIFA," sagði Platini.

Sepp Blatter sækist eftir endurkjöri fimmta kjörtímabilið í röð en hann hefur verið forseti FIFA frá því í júní 1998. Það er svart ský yfir FIFA því nú eru menn komnir með áþreifanlegar sannanir fyrir gríðarlegri spillingu meðal æðstu manna fótboltaheimsins.

Platini var spurður um möguleikann á því að Evrópulöndin sniðgangi HM í Rússlandi 2018. „Við munum allavega halda fund þar sem við förum yfir alla möguleika," sagði Platini og bætti við: „Við getum ekki haldið áfram á þessari braut með FIFA," sagði Platini.

Sepp Blatter neitaði að segja af sér þegar Platini bað hann um það í dag og lét það líta þannig út að ástæðan væri hversu stutt væri í ársþingið sem hefst á morgun.

„Ef Sepp heldur áfram þá þýðir það að hann hefur enn mikinn stuðning innan knattspyrnuheimsins," sagði Platini.

Michel Platini telur sig vera viss um að jórdanski prinsinn Ali bin al Hussein hafi stuðning frá 53 Evrópulöndum en alls hafa 206 lönd atkvæðisrétt í forsetakosningunum og því þarf að fá stuðning frá löndum annarsstaðar í heiminum þar sem Blatter hefur staðið vel að vígi.

Atburðir síðustu klukkutíma og sólarhringa hljóta samt að hrista upp í sumum þjóðum nú er þegar menn telja sig vera með sannanir fyrir áratuga langri spillingu innan FIFA.


Tengdar fréttir

Meint mútuþægni hjá toppum FIFA nær aftur til 1990

Bandarísk yfirvöld ákæra níu yfirmenn FIFA. Þeirra á meðal er varaforseti FIFA, Jeffrey Webb. Sepp Blatter, forseti FIFA, er ekki á meðal hinna ákærðu. Fjölmiðlafulltrúi FIFA segir sambandið fórnarlamb málsins.

Geir og félagar snúa baki við Sepp Blatter

Knattspyrnusamband Evrópu var eina álfusambandið sem vildi fresta forsetkosningum FIFA vegna handtakanna í Zurich í gær en aðildarlönd UEFA ætla samt sem áður að taka þátt í kosningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×