Bílar

Peugeot skrópar á Frankfürt Motor Show

Finnur Thorlacius skrifar
Peugeot 3008 á síðustu bílasýningu í París.
Peugeot 3008 á síðustu bílasýningu í París.
Æ algengara virðist að stóriri bílaframleiðendur sniðgangi stærsti bílasýningar heimsins. Franski bílaframleiðandinn Peugeot hefur nú tilkynnt að fyrirtækið ætli ekki að sýna bíla sína á komandi bílasýningu í Frankfürt á næsta ári. Það gerir Peugoet vegna þess að fyrirtækið vill leggja meiri fjármuni í markaðssetningu á netinu og með því þurfi að spara í öðrum markaðskostnaði, þar á meðal þáttttöku á bílsýningum.

Hjá Peugeot hefur markaðskostnaður á netinu hækkað frá 15% í 30% á undanförnum þremur árum og til stendur að hækka hann í 50% við enda þessa áratugar. Peugeot hefur einnig sagt að fyrirtækið vilji frekar verja fjármunum í sýningar á bílum sínum þar sem tilvonadi kaupendur geta prófað bíla þeirra, en það er ekki hægt á bílasýningum eins og í Frankfürt.

Enn eins ástæða þess að Peugeot sniðgengur bílasýninguna í Frankfürt er sú að markaðshlutdeild Peugeot í Þýskalandi er aðeins 1,7%. Peugoet mun væntanlega seint sniðganga bílasýninguna stóru í París sem haldin er annaðhvort ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×