Íslenski boltinn

Pepsi-mörkin: Hvað er í gangi hjá Val? | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gengi Vals í Pepsi-deildinni í sumar hefur verið langt undir væntingum.

Bikarmeistararnir töpuðu 2-1 fyrir ÍA á sunnudaginn og eru aðeins með 14 stig og í 8. sæti eftir fyrri umferðina.

Hörður Magnússon, Hjörvar Hafliðason og Logi Ólafsson fóru ofan í saumana á málefnum Vals í Pepsi-mörkunum í gærkvöldi.

„Mér finnst þetta svolítið ólíkt Ólafi Jóhannessyni, að halda ekki dampi þegar liðið vinnur leik,“ sagði Logi en Ólafur gerði nokkrar breytingar á liði Vals fyrir leikinn gegn ÍA, þrátt fyrir að leikurinn á undan hafi unnist.

Valsmenn fengu tvo Dani í félagaskiptaglugganum en þeir voru báðir í byrjunarliðinu gegn Skagamönnum. Sveinn Aron Guðjohnsen, sem kom frá HK, var aftur á móti ekki í hóp.

Strákarnir í Pepsi-mörkunum eru efins um að það hafi verið rétt skref fyrir Svein Aron, sem var búinn að skora fimm mörk í 10 deildarleikjum fyrir HK, að fara til Vals.

„Við þekkjum auðvitað sorgarsögu ungra leikmanna sem hafa farið í Val eins og Daða Bergssonar og Sindra Björnssonar,“ sagði Hjörvar

„Kallinn var á leik HK og Hugins um daginn og leist ekki alveg á þessa deild. En auðvitað á strákurinn bara að spila með fullorðnum karlmönnum. Þarna verður hann bara á bekknum og fær kannski smá tíma í einhverjum ruslleikjum undir lok móts.“

Hjörvar segir að staða Vals í Pepsi-deildinni sé engan veginn ásættanleg.

„Valsmenn hafa ekki unnið leik á útivelli eftir að þeir urðu gervigraslið. Gengið er langt undir pari, þeir eru í 8. sæti með 14 stig eftir alla þessa leikmannaveltu og allt sem átti að gera þarna. Þeir enduðu síðasta tímabil ömurlega og þetta hefur verið sjálfstætt framhald af þeim erfiðleikum,“ sagði Hjörvar.

Innslagið í heild sinni má sjá hér að ofan.


Tengdar fréttir

Reynir hættur hjá HK

Reynir Leósson er hættur þjálfun 1. deildarliðs HK eftir nokkurra mánaða starf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×