Lífið

Penthouse útsýnisíbúð á Laugavegi til sölu

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Íbúðin er í hjarta miðborgarinnar.
Íbúðin er í hjarta miðborgarinnar. vísir
162 fermetra íbúð á besta stað í miðborginni hefur verið sett á sölu hjá fasteignasölunni Lind.

Hér er í raun um að ræða efstu hæðina á Laugavegi 51, sem glöggir lesendur tengja eflaust við fataverslunina Maníu sem er þar á jarðhæðinni.

Í íbúðinni eru 3 svefnherbergi og tvö baðherbergi en húsið er byggt árið 1978.

Eignin er að mestu endurnýjuð að innan en henni fylgja tvennar svalir til norðurs og suðurs en af suðursvölunum er fallegt útsýni yfir Þingholtin.

Stofan er opin með mikill lofthæð og þá fylgja íbúðin tvö bílastæði. Uppsett verð eru rúmar 82 milljónir.

Til að sjá fleiri myndir og fræðast frekar um penthouse íbúðina geta lesendur smellt hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×