Tónlist

Panda kemst óvænt á topp Billboard-listans

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Lagið Panda með rapparanum Desiigner skaust óvænt á topp Billboard-listans núna á mánudaginn.
Lagið Panda með rapparanum Desiigner skaust óvænt á topp Billboard-listans núna á mánudaginn. Vísir/Getty
Lagið Panda með rapparanum Desiigner skaust óvænt á topp Billboard-listans núna á mánudaginn. Þetta er óvenjulegt fyrir margar sakir; rapparinn er nær óþekktur og Panda er aðeins annað lagið hans. Laginu fylgir ekki myndband en samt er meirihluti hlustunar á YouTube, eða tveir þriðju heildarhlustunar.

Þekkt nöfn úr rappheiminum, eins og Drake og Future, hefur enn ekki tekist að toppa listann – Drake náði öðru sæti með smellinum sínum Hotline Bling en hann náði ekki að slá út ofurhittarann hennar Adele, Hello.

Vinsældir Panda má líklega rekja beint til nýbakaða Íslandsvinarins Kanye West, en í laginu Pt. II af nýjustu plötu hans, The Life of Pablo, var Panda notað nánast óbreytt og þar var Desiigner skráður sem gestur. Desiigner­ er þar með kominn í hóp listamanna sem hafa notið góðs af áhrifum Kanye West, en hann hefur t.d. aukið vinsældir tónlistar­mannsins Travis Scott og rapparans Big Seans með svipuðum hætti.

Panda er einnig fyrsta bandaríska lagið sem kemst á lista í 41 viku, en það er nýtt met. Á toppi listans hafa kanadískir listamenn trónað mest allan þennan tíma en Justin Bieber og The Weeknd hafa verið áberandi og lagið Work með barbadosku söngkonunni Rihönnu hefur verið á listanum í alls níu vikur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×