Lífið

Pabbinn greinir mömmunni frá að þau eigi von á barni

Atli Ísleifsson skrifar
Nia verður himinlifandi þegar hún fær fréttirnar í eldhúsinu heima.
Nia verður himinlifandi þegar hún fær fréttirnar í eldhúsinu heima.
Þegar pör eiga von á barni er það oftast konan sem fær að vita fyrst. Það á þó ekki við í þessu tilviki þar sem eiginmaðurinn Sam kemur konunni sinni Niu á óvart með því að segja henni að þau eigi von á þriðja barninu.

Sam hefur birt myndband af því þegar hann sækir þvagsýni úr eiginkonu sinni inni á baðherberginu og kemst að því að hún sé ólétt.

Síðar fer hann svo inn í eldhús þar sem Nia er að gefa hinum börnunum tveimur morgunmat og segir henni að hún sé í raun ólétt.

Sjá má myndbandið af ævintýrum þeirra hjóna að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×