Fastir pennar

Fastir pennar

Fréttamynd

Bjóðum Bauhaus velkomna

Undanfarin misseri hafa Íslendingar gert víðreist í fjárfestingum sínum. Þar hefur verið sáð í akra sem vonandi gefa drjúga uppskeru í framtíðinni. Eins og gengur hafa viðbrögðin við íslenskri fjárfestingu á erlendri grund verið misjöfn.

Fastir pennar
Fréttamynd

Um Framsóknarmenn, tálbeitur og fréttir fyrir fugla

Miðað við skoðanakannanir hefði Árni ekki átt tryggt sæti í næstu kosningum fremur en flestir aðrir þingmenn Framsóknarflokksins. Í raun er hann að fara svipaða leið og forveri hans í sæti erfðaprinsins, Finnur Ingólfsson. Er kannski meira spennandi að vera í bisness en pólitík?

Fastir pennar
Fréttamynd

Þörf á stefnumörkun

Engum blöðum er um það að fletta, að þjónusta við aldraða er eitt af brýnustu og mikilvægustu verkefnum samtímans. Margt hefur verið vel gert á því sviði á umliðnum áratugum og sumt af mikilli reisn og framsýni. Þegar elliheimilið Grund var reist var það til að mynda ein glæsilegasta bygging sinnar tíðar í höfuðborginni.

Fastir pennar
Fréttamynd

Að dreifa ótta og tortryggni

Í hinum merkilega franska sagnabálki um Ástrík eru söguhetjurnar þorpsbúar á vesturströnd Frakklands. Þær eru ekki hræddar við neitt - nema að himininn detti ofan á hausinn á þeim. Samt lifa þær í mjög hættulegum heimi, fullum af óvinahermönnum, villidýrum og ræningjum...

Fastir pennar
Fréttamynd

Til hamingju Ísland, þið veljið mig

En hvernig væri umhorfs í þjóðfélaginu, ef allir væru eins? Ef allir lægju flatir fyrir hinum pólitíska rétttrúnaði, já ef þjóðfélagið væri sífellt sammála síðasta ræðumanni? Ef enginn nennti eða þyrði að láta sig varða almannahagsmuni?

Fastir pennar
Fréttamynd

Indland Ísland

Fyrir löngu var orðið tímabært fyrir okkur Íslendinga að opna þar sendiráð, hvað sem hver segir um útþenslu utanríkisþjónustunnar. Það er auðvitað alltaf matsatriði fyrir okkur Íslendinga sem fámenna þjóð hvar við eigum að hafa sendiráð með öllum þeim kostnaði sem því fylgir. En hvar eigum við að hafa sendiráð ef ekki í fjölmennustu ríkjum heims eins og Kína og Indlandi?

Fastir pennar
Fréttamynd

Góðverk gerð sýnileg

Alls staðar í samfélaginu eru samborgarar okkar að láta gott af sér leiða með margvíslegum hætti, gera eilítið meira en borgaraleg skylda segir til um, eða jafnvel miklu meira. Markmið Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins er að gera slík verk sýnileg.

Fastir pennar
Fréttamynd

Samþykki og umburðarlyndi

Þrátt fyrir margar sannar sögur af óumburðarlyndi kristinna manna fyrr á öldum verður að minna á, að í kristni er falinn skýr greinarmunur á andlegu og veraldlegu valdi. Menn eiga að gjalda keisaranum það, sem keisarans er, og Guði það, sem Guðs er, sagði Kristur.

Fastir pennar
Fréttamynd

Árangurinn er fagnaðarefni

Þegar litið er til afkomu banka og stærstu fjárfestingarfélaga sést að hagnaður þeirra er álíka mikill og fjárlög íslenska ríkisins, en það hefði engum dottið í hug fyrir örfáum misserum síðan að gæti orðið í fyrirsjáanlegri framtíð.

Fastir pennar
Fréttamynd

Skuldir og hallamál

Reynslan sýnir, að einkarekstur banka veitir almenningi enga haldbæra tryggingu gegn áföllum vegna of mikillar skuldasöfnunar einkageirans innan lands eða utan. Einkabankar geta varpað byrðinni á saklausa vegfarendur, ef í harðbakkann slær.

Fastir pennar
Fréttamynd

Fjör á fjármálamarkaði

Elliott skrifar að þetta sé mjög eldfim blanda – þarna sé á ferðinni blöðrufjármagn og blöðruhugsunarháttur. Það þurfi ekki mikið til að velta þessu kerfi. Þegar óstöðugleika varð vart á Íslandi í síðustu viku fóru menn að selja í Brasilíu, Tyrklandi og Ungverjalandi...

Fastir pennar
Fréttamynd

Illugi í rússneskri rúllettu

Fyrir skömmu fjallaði Egill Helgason um loftslagsbreytingar í þætti sínum Silfri Egils og gestir hans voru Hjörleifur Guttormsson og Illugi Gunnarsson, fyrrverandi aðstoðarmaður utanríkisráðherra. Illugi gerði lítið úr ábyrgð mannkyns á þessari náttúruvá og lét eins og það væri ástæðulaust að minnka notkun olíu og kola.

Fastir pennar
Fréttamynd

Lítið skref vekur upp spurningu

Þrátt fyrir opnun hagkerfisins eru erlendar fjárfestingar í sjávarútvegi enn nokkrum takmörkunum háðar. Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, hefur nú kynnt áform um að taka lítið skref til opnunar fyrir erlenda fjárfestingu á þessu sviði með því að heimila útlendingum að eiga og reka fiskmarkaði hér á landi.

Fastir pennar
Fréttamynd

Háskóli á heimsvísu

Eitt af því, sem Háskólinn þarf að velta fyrir sér er sjálft stjórnfyrirkomulag skólans. Það byggir um margt á gömlum rótgrónum hugmyndum. Svara þær kalli nýs tíma? Það gæti verið nauðsynlegt að endurskipuleggja stjórnsýsluna. Önnur nærtæk spurning lýtur að skólagjöldum. Aðrir háskólar í landinu hafa sumir hverjir heimild til ákveðinnar gjaldtöku. Getur Háskóli Íslands búið við þá samkeppnisaðstöðu?

Fastir pennar
Fréttamynd

Vangaveltur um prófkjör

Prófkjör eru góð til endurnýjunar, segir Valgerður Bjarnadóttir. Þess vegna hafa t.d. sitjandi þingmenn minni áhuga á að nota ­prófkjörs­aðferðina­ en þeir sem ganga með þingmanninn í maganum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Skynsemi á bjargbrúninni

Fjármálakerfið og staða þjóðarinnar í efnahagslegu tilliti er sterk, en mikilvægt er að halda skynsamlega á málum. Ríkið þarf að halda aftur af útgjöldum sínum og nota tímann í uppsveiflunni til að hagræða í rekstri. Það er sársaukaminnst að taka til þegar næg atvinna er í landinu. Þegar rykið settist eftir lánshæfismat Fitch einkenndist umræðan hér á landi af yfirvegun og stillingu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Vantar fólk í álverin?

Hvers vegna er svo brýnt að draga úr menntun íslenskra ungmenna? Vantar fólk í álverin? Eða eru íslensk ungmenni of vel menntuð þegar komið er í framhaldsnám?

Fastir pennar
Fréttamynd

Aðkomumenn knýja dyra

Ef sáttmálar og viðskiptasamningar þjóðar okkar eru nægilega mikilvægir til að þurfa að hljóta samþykki þingsins til að öðlast gildi hlýtur það einnig að eiga við um ákvarðanir um að fela erlendum aðilum stjórn yfir eignum sem hafa með öryggi bandarísku þjóðarinnar að gera. Og þetta á sérstaklega við um þessar mundir, á þessari nýju óöld hryðjuverka.

Fastir pennar
Fréttamynd

Fyrirmyndar Food and Fun

Uppgangur íslenskrar ferðaþjónustu hefur verið ævintýri líkastur. Í Ferðamálaáætlun 2006 til 2015, sem var unnin að frumkvæði Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra og gefin út í fyrra, kemur fram að ferðamönnum sem heimsóttu Ísland fjölgaði um 69 prósent á tímabilinu 1995 til 2004 á meðan sambærileg aukning í heiminum öllum var um 24 prósent.

Fastir pennar
Fréttamynd

Heilbrigðisvottur

Veiking krónunnar getur ekki komið nokkrum á óvart. Í reynd hafa menn búist við slíkum breytingum um allnokkurn tíma. Vaxandi viðskiptahalli hefur verið ótvíræð vísbending þar um. Að hluta til er viðskiptahallinn vottur um heilbrigði og grósku í efnahagslífinu; að svo miklu leyti, sem hann á rætur í fjárfestingu er skila mun auknum arði og meiri verðmætasköpun inn í þjóðarbúið.

Fastir pennar
Fréttamynd

Nýr tími kallar á nánari samskipti

Hvernig svo sem formlegum tengslum okkar við Evrópu verður hagað í framtíðinni er eitt ljóst: Evrópusamskiptin geta aðeins vaxið. Það er því afar brýnt að rækta meir en gert hefur verið til þessa samskipti við þau ríki í Evrópu þar sem við vitum, að hagsmunir og sjónarmið fara saman við okkar eða liggja þeim nærri.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hin danska undrun

Eins og Danir virðast skilja mun betur en Íslendingar þá er grunnhugmyndin um fullburða dagblað sem dreift er frítt í hvert hús mjög einstæð tilraun og Ísland hefur hvað þetta varðar í raun verið eins konar tilraunastofa þar sem hægt er að prófa viðskiptahugmyndina.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ríkið hefði átt að standa sig betur

Bankakerfið nýtur trausts á alþjóðamörkuðum og það traust er á góðri leið með að verða ein verðmætasta eign þjóðarinnar, eins og forstjóri KB banka benti á á nýliðnu Viðskiptaþingi.

Fastir pennar
Fréttamynd

Sagnfesta eða bókfesta?

Ef við ættum eintóma annála aftan úr fornöld og engan skáldskap, vissi þjóðin væntanlega minna um uppruna sinn og sögu en hún gerir nú. Skýringin blasir við: skrautlegar skáldsögur eiga vísari aðgang að mörgum lesendum en vindþurrkaðir annálar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Irving á líka að hafa málfrelsi

iDavid Irving mátti vita að hann var eftirlýstur í Austurríki. Hann ákvað að fara. En það er samt rangt að loka hann inni. Það er langsótt að gera afneitun á helförinni að glæp. Irving nýtur einskis álits. Eftir meiðyrðamál sem hann tapaði árið 2000 var hann ærulítill...

Fastir pennar
Fréttamynd

Óbótamenn að verki

Það var átakanlegt að horfa upp á forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins í Kastljósi á dögunum. Þar lýsti hann því hvernig stofnuninni hefði verið falið að hafa upp á þeim bótaþegum, sem svo lágt hafa lagst að mergsjúga ríkissjóð, og tína aftur upp úr vösum þeirra þann illa fengna auð, sem þeir hefðu sankað að sér á undanförnum árum, 1100 milljónir á árinu 2004 og áætlaðar 1800 milljónir í ár.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hverjum einasta steini skal velt við

Mikilvægt er að fjalla af víðsýni um Evrópusambandsmál á næstu misserum og árum og þarf að velta við hverjum steini til að draga fram þá kosti og galla sem fylgja myndu aðild Íslands. Ekki er hægt að taka afstöðu til spurningarinnar út frá háværum ópum um að við missum yfirráðin yfir fiskveiðilögsögunni eða að matarverð lækki um helming.

Fastir pennar
Fréttamynd

Nú þarf að fá botn í málið

Hér er fjallað um Búnaðarbankamálið en einkum þó viðbrögð Halldórs og Valgerðar við endurvaktri umræðu um það, þáttinn hennar Völu Matt sem vonandi er kominn í heila höfn á Stöð 2 og fótboltabullur í flugvél á leið til Lundúna...

Fastir pennar