Bíó og sjónvarp

Bíó og sjónvarp

Fréttir af íslenskum og erlendum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum, bíóbransanum og sjónvarpsframleiðslu.

Fréttamynd

Þokkafullur drykkjurútur

Eftir nokkurra missera fjarveru dúkkar írski leikarinn Peter O‘Toole upp aftur á verðlaunapöllum fyrir frammistöðu sína í Venus, sem Græna ljósið frumsýnir annað kvöld. Nafnið hringir ef til vill ekki bjöllum í eyrum ungra en fyrir eldri kynslóðir þarfnast O‘Toole lítillar kynningar, enda einn virtasti leikari Breta sem á að baki yfir 80 hlutverk í kvikmyndum og sjónvarpi.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Hempa á háu verði

Hempa sem Sir Alec Guinness klæddist í fyrstu Star Wars-myndinni seldist á um sjö milljónir króna á uppboði sem var haldið á hinum ýmsu fötum sem hafa verið notuð í kvikmyndum og sjónvarpi.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Kristín leikstýrir með Vesturporti

„Við höfum verið að gera heilmikið saman," segir Gísli Örn Garðarsson leikstjóri um samstarf sitt við Kristínu Ólafsdóttur, eiginkonu athafnamannsins Björgúlfs Thors Björgólfssonar. Kristín er aðstoðarleikstjóri söngleiksins Ást sem frumsýndur verður í Borgarleikhúsinu á laugardag.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Meðleikari Borats í Get Smart

Leikarinn Ken Davitian, sem hvað þekktastur er fyrir hlutverk sitt á móti Sacha Baron Cohen í kvikmyndinni Borat, hefur landað hlutverki í kvikmynd sem er endurgerð sjónvarpsþáttarraðarinnar Get Smart og áætlað er að komi út á næsta ári.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Halaleikhópurinn sýnir Batnandi maður

Halaleikhópurinn sýnir nú leikritið Batnandi maður eftir Ármann Guðmundsson sem einnig leikstýrir verkinu. Leikritið fjallar um sjómanninn Sigmar sem hefur fengið nóg af sjómennsku. Þegar hann lendir í vinnuslysi notar hann tækifærið til að láta úrskurða sig sem öryrkja og nýtur þannig lífsins á kostnað skattborgara.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Ungt fólk á listabraut

Borgarleikhúsið fékk góða gesti í liðnum mánuði en þá voru dyr hússins opnaðar ungu fólki sem vildi kynna sér leikhúsmiðilinn. Forsvarsmenn leikhússins hvetja þannig til þess að ungt fólk kynnist ekki aðeins skemmtuninni heldur læri einnig að þekkja leikhúsið sem farartæki fyrir skoðanir, tilfinningar og baráttumál.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Skikkja Obi-Wan til sölu

Skikkjan sem leikarinn Sir Alec Guinness klæddist í hlutverki Obi-Wan Kenobi í fyrstu Star Wars myndinni fyrir þrjátíu árum verður boðin upp af uppboðshúsinu Bonhams í London á næstu dögum.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Myndin er í réttum farvegi

„Þetta mál er á viðkvæmu stigi,“ segir Jón Þór Hannesson, einn framleiðandi myndarinnar A Journey Home eða Slóð fiðrildanna en um er að ræða stórmynd gerða eftir samnefndri sögu Ólafs Jóhanns Ólafssonar.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Íslandsvinurinn Jude Law heiðraður

Breski leikarinn Jude Law sem dvaldist hér á landi fyrir skömmu hefur hlotnast ein stærstu menningarverðlaun Frakka. Var það sendiherra Frakklands í Englandi, Gerard Errera, sem veitti Jude ,,Chevalier des Arts et des Lettres medal” verðlaunin.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Kraftmikill Grettir

Upptökum er að ljúka á tónlist við söngleikinn Grettir sem verður frumsýndur þann 30. mars. „Þetta hefur gengið mjög vel,“ segir Hallur Ingólfsson, tónlistarstjóri hljómsveitarinnar sem hefur staðið í ströngu við upptökunar.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Halle Berry í Tulia

Halle Berry mun fara með aðalhlutverkið í dramamyndinni Tulia. Hefjast tökur á henni þann 1. maí í Louisiana. Myndin er byggð á sönnum atburðum sem áttu sér stað í bænum Tulia í Texas árið 1999 þegar 46 þeldökkir menn voru handteknir vegna gruns um að hafa í fórum sínum eiturlyf. Voru þeir ranglega ásakaðir af spilltri löggu í málinu þrátt fyrir að engar sannanir hafi fundist fyrir sekt þeirra.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Frábærar viðtökur á Pétri Gaut

„Eftir uppklappið var ekki laust við að spennufall ríkti baksviðs, dasaðir leikarar og tæknimenn gengu um eins og í leiðslu og hér og hvar glitti í tár á hvarmi, enda hjarta og sál bæði meyr og opin eftir átök kvöldsins.“ Svona lýsir leikarinn Ólafur Egill Egilsson stemningunni baksviðs eftir að Þjóðleikhúsið hafði frumsýnt uppfærslu sína á Pétri Gaut í Barbican Center á miðvikudagskvöldinu.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Ben Stiller spenntur fyrir að leika á móti Tom Cruise

Leikarinn skemmtilegi Ben Stiller kveðst vera spenntur fyrir að leika á móti Tom Cruise í kvikmynd sem áætlað er að fara í framleiðslu með á næsta ári. Kvikmyndin mun verða byggð á bókunum um The Hardy Boys og bera heitið Hardy Men. Hún fjallar um bræðurna Frank og Joe Hardy á fullorðinsárum sínum þar sem þeir reyna að leysa ráðgátur.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Basic Instinct 2 versta kvikmyndin

The Golden Raspberry Awards eru verðlaun sem árlega velja verstu Hollywood kvikmyndirnar. Fara verðlaunin fram á sama tíma og Óskarsverðlaunin eru afhent. Hreppti kvikmyndin Basic Instinct 2 aðalverðlaunin að þessu sinni.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Helstu vinningshafar Óskarsverðlaunanna

Óskarsverðlaunin voru afhent í 79. sinn í gærkvöldi og var verðlaunaafhendingin glæsileg að vanda. Ellen DeGeneres var kynnir hátíðarinnar í ár og þótti standa sig afar vel en þetta var í fyrsta sinn sem hún kynnir hátíðina.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Líf og fjör í Kattholti

Emil í Kattholti er kominn á Hvammstanga með öllum sínum skammarstrikum. Að sjálfsögðu fylgir öll fjölskyldan úr Kattholti honum og þau taka líka á móti gestum.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Ástin og gleymskan

Æfingar eru hafnar á nýju leikriti eftir Eric-Emmanuel Schmitt í Þjóðleikhúsinu. Verkið „Hjónabandsglæpir“ verður frumsýnt í leikstjórn Eddu Heiðrúnar Backman þann 18. apríl næstkomandi.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Hannibal Rising - ein stjarna

Rétt eins og Hannibal Lecter gerir við fórnarlömb sín, smjattar rithöfundurinn Thomas Harris á frægustu mannætu síns tíma. Hannibal Rising er fimmta myndin um Lecter (tvær byggja reyndar á sömu bók) og í þetta sinn er ljósinu brugðið á uppvaxtarár Hannibals og leitað skýringa á annarlegum matarsmekk hans.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Forest Whitaker og Helen Mirren nær örugg um sigur

Óskarsverðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í Kodak-höllinni í Los Angeles í kvöld. Verðlaunin eru án efa þekktustu kvikmyndaverðlaun heims, þótt sitt sýnist hverjum um hversu marktækur mælikvarði Óskarinn er á gæði mynda. Grínistinn Ellen Degeneres snýr aftur sem kynnir.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Þrívíddarbíó á Íslandi

Frá og með 30.mars verður hægt að sjá myndir í þrívídd í Kringlubíó. Um miðjan næsta mánuð er rá'ðgert að fara í umbætur í aðalsal bíósins og í frammhaldi af því verður reglulega boðið upp á myndir í þessum gæðum.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Angelina Jolie kynþokkafyllst

Angelina Jolie var kosin kynþokkafyllsta persóna allra tíma í netkönnun sem spannaði 100 mestu kynbombur sögunnar. Fast á hæla hennar var Elvis Presley, þá Brad Pitt en Marilyn Monroe og Beyonce Knowles voru í fjórða og fimmta sæti.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Önnur útgáfa af Payback

Væntanleg er endurútgáfa á Payback með Mel Gibson á DVD mynddiski. Myndin var frumsýnd árið 1999 en tökur hennar gengu ekki áfallalaust þar sem leikstjóri myndarinnar, Brian Helgeland, þótti skila af sér slakri mynd að mati framleiðenda. Ráðist var í endurtökur sem skiluðu af sér allt annarri mynd en þeirri sem leikstjórinn ætlaði.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Tyra og Paris rasa út í Reykjavík

Haft er á orði að sumum berist daglega fleiri fréttir af stórstjörnum á borð við Paris Hilton og Tyru Banks en af fjölskyldumeðlimum og vinum. Þessar drósir eru að sönnu góðkunningjar margra af sjónvarpsskjám og síðum blaða en færri vita þó að í borginni Reykjavík má kynnast nýjum hliðum á þessum stjarnfræðilega frægu snótum.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Æfingar hafnar hjá Óperunni

Óperustúdíó Íslensku óperunnar frumsýnir óperurnar Systur Angelicu og Gianni Schicchi eftir Puccini 21. mars nk. Æfingar eru komnar vel á veg og taka yfir þrjátíu söngnemendur og fjörtíu nemendur í hljóðfæraleik þátt í verkefninu. Þetta er fjórða árið í röð sem Íslenska óperan stendur fyrir Óperustúíói og og reynsla síðustu þriggja ára hefur sýnt að það er mikill áhugi fyrir verkefninu bæði meðal þátttakenda sem og áhorfenda.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Gísli Örn ráðinn í breska Þjóðleikhúsið

„Það er mikill heiður að vera boðið að leika í þessu virta leikhúsi,“ segir Gísli Örn Garðarsson leikari, sem hefur verið ráðinn í burðarhlutverk í leikritinu Matter of Life and Death, sem sett verður á fjalirnar í breska Þjóðleikhúsinu í maí.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Strákur veiðir úlf úr skóginum

Krakkarnir voru með á nótunum í sviðsetningu Bernds Ogrodnik á sögunni góðkunnu um Pétur og fórnarlamb hans, úlfinn. Í hvert sinn sem Bernd leitaði til þeirra voru svör á reiðum höndum. Þau sátu fremst í salnum í Kúlunni á sessum meðan eldri gestir sátu aftar og skemmtu sér ekki síður.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Sýna hjá Gorkí

Íslenskt leikhúsfólk gerir það ekki endasleppt þessa dagana – í London er uppfærsla Þjóðleikhússins á Pétri Gaut að fara á svið í Barbican-leikhúsinu og nú berast fregnir þess að Hið lifandi leikhús hyggist gera strandhögg í Berlín.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Óumflýjanleg uppgjör á bar

Margir íslenskir leikhúsgestir kannast við leikritið Bar par enda hefur það í tvígang verið sýnt við fádæma undirtektir hér á landi. Nú á föstudaginn gefst enn á ný kostur á að kynnast fjölskrúðugu persónugalleríi Jims Cartwright en þá verður ný uppfærsla gamanleiksins frumsýnd á skemmtistaðnum Nasa við Austurvöll.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Pursuit of Happyness - tvær stjörnur

Lífsbarátta sölumannsins Chris Gardner sem er að reyna að vinna sig upp úr eymd og fátækt er langt frá því að vera léttvægt grín. Mestur hluti kvikmyndarinnar Pursuit of Happyness fjallar um sífelld vonbrigði hans og strögl við að verða verðbréfasali. Konan (Thandie Newton) fer frá honum, hann missir húsnæðið og endar á vergangi með strákinn sinn (Jaden Smith) en samt gefst hann ekki upp.

Bíó og sjónvarp