Lífið

Óttaðist stöðugt að það kæmist upp um hana

Guðný Hrönn skrifar
Berglind starfar við hugbúnaðarþróun hjá Kolibri og semur ljóð og raftónlist samhliða því.
Berglind starfar við hugbúnaðarþróun hjá Kolibri og semur ljóð og raftónlist samhliða því. Vísir/GVA
Tölvunarfræðingurinn Berglind Ósk Bergsdóttir hefur þjáðst af „imposter syndrome“, eða blekkingarheilkenni eins og það kallast á íslensku. Eftir að hún komst að því að um algengt heilkenni er að ræða fór hún að kynna sér málið betur og halda fyrirlestra.

Svikara- eða blekkingarheilkennið er sálfræðihugtak sem var fyrst rannsakað á áttunda áratugnum og hefur verið rannsakað töluvert síðan,“ segir Berglind um heilkennið sem vísar til ástands þegar manneskju líður eins og hún sé að blekkja alla varðandi hæfileika sína og að það sé tímaspursmál þar til annað fólk kemst að því að hún sé í raun ekki eins hæf og allir halda.

„Þessi líðan er til staðar þrátt fyrir að utanaðkomandi aðstæður bendi til þess að manneskjan sé í raun mjög hæf, en þær eru bara afsakaðar sem heppni, góð tímasetning, að hver sem er gæti afrekað þetta og svo framvegis. Einkenni blekkingarheilkennisins er fullkomnunarárátta, hræðsla við mistök, óraunhæfar kröfur til sjálfs sín og tregða við að taka hrósi,“ útskýrir Berglind. Hún segir að heilkennið hafi marga fylgikvilla, svo sem stress og kvíða sem getur svo leitt til óheilbrigðs vinnuálags og jafnvel þunglyndis.

Berglind fann fyrst almennilega fyrir heilkenninu þegar hún var í námi við Háskóla Íslands. „Þegar ég var í tölvunarfræði þá var ég með minnimáttarkennd yfir að vera kvenmaður og að hafa litla reynslu af forritun. Þessi líðan er skiljanlega algeng hjá nemendum og hélt ég alltaf að þetta myndi dvína eftir að ég væri byrjuð að vinna. Ég útskrifast árið 2010, fór þá til gogoyoko og var þar í tvö ár, svo fór ég til Plain Vanilla þegar það var að taka sín fyrstu skref. Við vorum einungis sex á þessum tíma í fyrirtækinu. Ég byrjaði að skrifa Android-útgáfu QuizUp. QuizUp varð einn hraðast vaxandi leikur í App Store og náði gríðarlegum vinsældum um allan heim, bara Android-appið var með um 18 milljón notendur. Þarna var ég, hjá einu flottasta fyrirtæki landsins, var í mikilvægu hlutverki en fannst ég samt aldrei eins klár og allir hinir eða vera að gera hlutina nógu vel og óttaðist stöðugt að fólk kæmist að því að ég vissi ekkert hvað ég væri að gera,“ útskýrir Berglind sem á þessum tíma vann mikið.

Flestir virðast hafa upplifað þetta einhvern tímann



„Þetta endaði með kulnun í starfi og það tók mig langan tíma að ná mér að fullu eftir það. Þegar ég las svo fyrst um blekkingarheilkennið tengdi ég algjörlega við það og fannst magnað að þetta er eitthvað sem margir upplifa.

Flestir sem ég hef talað við hafa upplifað þetta einhvern tímann, en svo er mismunandi hversu sterkt eða lengi þetta hefur verið hjá fólki. Heilkennið var fyrst rannsakað í tengslum við konur sem nutu velgengni í starfi, en síðar hefur komið í ljós að þetta er ekki bundið við kyn. Hins vegar er einhver fylgni við að vera í minnihlutahóp á sínu sviði þannig að þegar konur starfa í karllægum bransa skýrir það af hverju þær finna meira fyrir þessu.“

Berglind hefur haldið fyrirlestra um heilkennið eftir að hún áttaði sig á hvað um var að ræða. „Ég hafði lesið að þetta heilkenni væri algengt í hugbúnaðarbransanum og mér leið strax betur eftir að hafa heyrt að ég væri ekki ein um þetta svo mig langaði að deila þessu með fleirum og vonandi hjálpa fólki,“ segir Berglind sem hélt fyrst erindi um heilkennið á fyrirlestrakvöldi hjá JavaScript-samfélaginu á Íslandi. „Viðbrögðin við fyrirlestrinum fóru algjörlega fram úr mínum vonum og hef ég verið fengin til að halda fyrirlesturinn þrisvar síðan, næst fer ég á ráðstefnu í Úkraínu með fyrirlesturinn.“

Berglind telur að hún muni aldrei komast algjörlega yfir blekkingarheilkennið en opinská umræða hjálpar henni í baráttunni við það. „Í dag er ég meðvituð þegar þessar hugsanir koma og ég veit hvað ég þarf að gera. Stundum er nóg fyrir mig að taka mér bara pásu frá því sem ég er að gera og oftast virkar núna bara að segja upphátt hvað ég sé að hugsa og geta hlegið að því og þá fer þetta.“

„Að segja upphátt hvernig manni líður og ekki vera hrædd við að biðja um hjálp,“ segir Berglind aðspurð hvort hún lumi á einhverjum ráðum til þeirra sem finna fyrir þeim tilfinningum sem fylgja gjarnan blekkingarheilkenninu. „Einnig mæli ég með að skrifa niður hvað þú hefur lagt á þig til þess að komast á þann stað sem þú ert á í dag. Hugsaðu um vandamál og verkefni sem þú hefur leyst, hvaða nýju hluti þú hefur lært og hvenær þú sagðir já við einhverju sem þú hefðir auðveldlega getað neitað. Þá sérðu svart á hvítu að þú hefur átt stóran þátt í árangri þínum og virkilega viðurkenndu það fyrir sjálfum þér.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×