Íslenski boltinn

Ótrúleg endurkoma Fylkis | Pedersen með þrennu í öruggum Valssigri

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Valsmenn unnu 4-0 sigur á Selfossi.
Valsmenn unnu 4-0 sigur á Selfossi. vísir/vilhelm
Níu leikir fóru fram í 32-liða úrslitum Borgunarbikars karla í fótbolta í kvöld.

KR rúllaði yfir Keflavík suður með sjó en nánar má lesa um leikinn hér. Fjölnir átti ekki í vandræðum með að leggja ÍA að velli, 0-3, eins og lesa má um hér, og Stjarnan hafði betur gegn Leiknir R. eftir vítaspyrnukeppni. Lesa má um leikinn með því að smella hér.

Fylkir tryggði sér sæti í 16-liða úrslitunum með ævintýralegum endaspretti gegn C-deildarliði Njarðvíkur sem leiddi 0-2 þegar sjö mínútur voru eftir. En Fylkismenn skoruðu þrjú mörk á lokakaflanum og tryggðu sér sigurinn. Ásgeir Örn Arnþórsson, Ragnar Bragi Sveinsson og Davíð Einarsson skoruðu mörk Árbæinga.

FH vann 2-1 sigur á B-deildarliði HK eftir að hafa lent undir strax á 4. mínútu. Guðmundur Atli Steinþórsson skoraði mark HK en Steven Lennon og Þórarinn Ingi Valdimarsson mörk Fimleikafélagsins.

Patrick Pedersen skoraði þrjú mörk Vals í 4-0 sigri liðsins á Selfossi á Vodafone-vellinum. Tómas Óli Garðarsson skoraði fjórða og síðasta mark Vals í uppbótartíma.

Dominic Khori Adams skoraði einnig þrennu fyrir ÍBV sem vann 0-6 sigur á Létti. Richard Sæþór Sigurðsson skoraði tvö mörk og Jonathan Glenn eitt.

Kristófer Eggertsson var hetja Víkings Ólafsvíkur sem vann 2-3 sigur á Þór á Akureyri.

Þórsarar leiddu 2-1 í hálfleik og þannig var staðan fram á 81. mínútu þegar Ingólfur Sigurðsson jafnaði metin. Kristófer skoraði svo sigurmarkið þremur mínútum fyrir leikslok.

Víkingur þurfti framlengingu til að leggja C-deildarlið Hattar að velli. Rolf Toft og Igor Taskovic tryggðu Víkingum sigurinn með tveimur mörkum í framlengingunni.

Úrslit kvöldsins:

Léttir 0-6 ÍBV

Þór Ak. 2-3 Víkingur Ó.

Keflavík 0-5 KR

Stjarnan 1-1 Leiknir R. (7-6 eftir vítaspyrnukeppni)

ÍA 0-3 Fjölnir

FH 2-1 HK

Fylkir 3-2 Njarðvík

Víkingur R. 2-0 Höttur

Valur 4-0 Selfoss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×