Innlent

Össur spáir langvinnri og djúpstæðri stjórnarkreppu

Atli Ísleifsson skrifar
Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segist búast við langvinnri og djúpstæðri stjórnarkreppu að loknum alþingiskosningunum í október.

Össur og Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, voru gestir Kristjáns Kristjánssonar á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun þar sem farið var yfir stöðuna í pólitíkinni nú í aðdraganda kosninga.

Ólafur Ragnar hafði rétt fyrir sér

Össur sagði að líklega hafi Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, haft rétt fyrir þegar hann spáði því í upphafi árs að á landinu yrði stjórnarkreppa að loknum kosningum.

Össur segir að svo virðist sem enginn flokkanna standi neitt sérstaklega sterkt nú í aðdraganda kosninganna.

„Allir hefðbundnu flokkarnir standa illa. Minn flokkur er auðvitað í vanda. Sjálfstæðisflokkurinn hefur minnkað, við sjáum það á þátttökunni í gær þó hún skilaði ágætri niðurstöðu fyrir þá. Framsóknarflokkurinn er kannski í mestum vanda þar sem það virðast vera svo miklar höggorrustur þar framundan í tengslum við forystuna.

Ef þú tekur nýrri flokka, eins og til dæmis Pírata, þá eru þeir sjálfir í bölvuðum vanda,“ og vísar í að þar þurfi meðal annars að endurtaka prófkjör í Norðvesturkjördæmi.

„Ef það er ein ályktun sem ég dreg af þessu öllu saman þá er það að líkast til hafði Ólafur Ragnar hárrétt fyrir sér þegar hann spáði því hér í upphafi þessa árs að það yrði stjórnarkreppa. Ég hugsa að sú stjórnarkreppa gæti orðið langvinn og hugsanlega djúpstæð.“

Deyfð yfir stjórnmálunum

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki endilega taka undir með Össuri en segir einhverja deyfð vera yfir stjórnmálunum.

„Það er deyfð yfir þeim sem ættu að vera í grasrótinni og hafa verið í grasrótum flokkanna og sýnt því áhuga þegar prófkjör eru eða val á lista með einum eða öðrum hætti. Þar held ég að flokkarnir þurfi sjálfir að velta því fyrir sér hvað það sé hjá okkur, hvað erum við að segja og gera, sem veldur því að fólk hefur engan áhuga á að velja fólk eða taka þátt,“ segir Ragnheiður.

Hlusta má á spjall þeirra Kristjáns, Ragnheiðar og Össurar í spilaranum að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×