Tónlist

Ósáttur ljósmyndari náði sér niðri á Courtney Love

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Fyrir fjórum árum var ljósmyndari að nafni J.M. Ladd beðinn um að taka upp ýmsa tónleika sem haldnir voru í tilefni af tískuvikunni í New York.

Eitt af þessum verkefnum var að taka upp tónleika með Hole, hljómsveit Courtney Love, í SoHo-hverfi borgarinnar. Eftir tískuvikuna sat Ladd eftir með sárt ennið þar sem hann fékk aldrei borgað fyrir störf sín.

Í gær ákvað Ladd síðan að setja myndband af tónleikunum á netið, þar sem má heyra einangraða upptöku af söng og gítarspili Courtney. „Ég var ráðinn í gegnum tónleikastaðinn til að taka þessa tónleika upp. Fjórum árum seinna er ég ennþá með þessi skjöl og hef í raun enga hugmynd hvað ég eigi að gera við þau. En ég hef gaman af því að deila á netinu,“ ritar hann.

„Það sem þið heyrið hér er söngur og gítarleikur Courtney einangraður.“





„Til að svara augljósri spurningu sem ég á óhjákvæmilega eftir að fá – þetta er ekki falsað. Þú verður að ákveða sjálf/ur um hvort þér finnist hún einfaldlega vera hræðileg eða hvort þér finnist þetta gera hana að enn meiri „pönkara“. Ég birti aðeins staðreyndirnar eins og þær eru.“

Hér fyrir neðan má síðan heyra lagið flutt eins og það hljómaði á tónleikunum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×