Glamour

Orlando Bloom litar sig ljóshærðan

Ritstjórn skrifar
Orlando hefur alltaf verið dökkhærður.
Orlando hefur alltaf verið dökkhærður. Myndir/Getty
Leikarinn Orlando Bloom hefur litað sig ljóshærðan. Talið er að hann hafi litað hárið sitt fyrir hlutverk í kvikmyndinni Tour De Force sem hann er að taka upp um þessar mundir. 

Ljósa hárið fer leikaranum vel enda er alltaf gaman að breyta til, sérstaklega þegar það kemur að hárgreiðslum. Kærasta Bloom, Katy Perry, er óhrædd við að skipta um hárliti en hún hefur verið með grænt og blátt hár í gegnum tíðina sem og bleikt. 

Leikarinn hefur litað sig alveg ljóshærðann.





×