Tónlist

Órafmagnaður Ásgeir Trausti



Ásgeir Trausti
og Júlíus Aðalsteinn Róbertsson fluttu lagið Going Home fyrir utan tónlistarhúsið Botanique í Brussel á dögunum eftir tónleika inni í tónlistarhúsinu.

Um er að ræða órafmagnaða útgáfu og tóku áhorfendur mjög vel í flutninginn. Myndbandið var tekið upp fyrir tónlistarsíðuna, Bruxelles Ma Belle.

Ásgeir er nú ásamt hljómsveit sinni á tónleikaferðalagi og fer meðal annars til Ástralíu og Japans síðar í mánuðinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×