Óprúttinn köttur ruplar röndóttu í Vesturbænum sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 11. október 2015 20:06 Röndóttir sokkar eru í miklu uppáhaldi hjá Ljósu, sem hefur að undanförnu farið í ránsferðir um Vesturbæ.
Kötturinn Ljósa hefur að undanförnu látið „greipar“ sópa í þvottahúsum nágranna sinna í Vesturbænum, og haft sérstakan augastað á röndóttum flíkum. Þýfið fer hún svo með til eiganda síns, Ólafar Sverrisdóttur leikkonu. „Ætli það sé ekki kominn tími á að biðja nágrannana á Framnesveginum afsökunar,“ segir Ólöf hlæjandi. Hún segir Ljósu hrífast mest af sokkum og vettlingum, en að nú síðast hafi hún komið heim með nærbrækur. „Það tók mig dágóðan tíma að átta mig á því að þessir hlutir væru frá henni. Fyrst um sinn skildi ég ekkert í því hvers vegna ég var að finna hinn og þennan sokk um allt hús, en áttaði mig svo á að þetta væri eitthvað sem Ljósa hafði komið með heim. Núna hins vegar skilur hún nánast allt eftir fyrir framan útidyrahurðina,“ útskýrir Ólöf. „Hún hafði þó ekki komið með nærbuxur heim fyrr en í nótt.“Ljósa litla er mikill karakter að sögn Ólafar.Áhugi Ljósu á vettlingum og sokkum byrjaði þegar hún var kettlingur og hefur síðan þá ágerst umtalsvert. „Þegar hún var lítil kom hún heim með drulluga vettlinga og svoleiðis, en núna er allt sem hún kemur heim með hreint. Það má allavega segja að það sé betra en að hún sé að koma heim með mýs eða fugla líkt og sumir kettir gera,“ segir Ólöf. „En ég er alveg viss um að þetta séu gjafir ætlaðar mér. Hún er allavega alltaf alveg voðalega stolt þegar hún kemur með þetta heim.“ Á meðfylgjandi mynd má sjá brotabrot af því sem Ljósa litla hefur gefið eiganda sínum.
Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Fleiri fréttir Óhugnanlega mikið að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Sjá meira