Lífið

Óprúttinn aðili þykist vera Jökull í Kaleo

Ellý Ármanns skrifar
Hér vinstra megin má sjá myndina sem notuð er af söngvara Kaleo.
Hér vinstra megin má sjá myndina sem notuð er af söngvara Kaleo.
Svo virðist vera sem óprúttinn aðili noti mynd af Jökli Júlíussyni, söngvara hljómsveitarinnar Kaleo, á samskiptamiðlunum Snapchat og Taggalicious.

Jökull er ekki á samskiptasíðum eins og Facebook eða fyrrnefndum síðum þannig að hér er um aðila að ræða sem þykist vera söngvarinn.




„Það hefur verið haft samband við mig oftar en einu sinni og ég spurður hvort að þetta væri í raun og veru ég á þessum og hinum miðlum. Ég er hvorki á Facebook, Snapchat eða öðrum samskiptamiðlum. Manni þykir þetta undarlegt og jafnvel spaugilegt en þegar fólk er byrjað að hafa samband og spyrja mig út í hluti sem ég hef ekki hugmynd um og man ekki eftir þá er þetta orðið frekar skrýtið. Sérstaklega þar sem að sumt af þessu er mjög óviðeigandi," segir Jökull þegar við spyrjum hann út í þetta ömurlega mál.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×