Innlent

Opnari samfélagsumræða vegna árásarinnar í Útey

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Samfélagsumræðan er opnari í Noregi eftir hryðjuverkaárásirnar í Útey og fleiri nýta sér rétt sinn til að tjá sig. Þetta segir ein þeirra sem lifði árásirnar af en nú rúmum fjórum árum eftir þær er hún varaborgarstjóri í Osló.

Khamshajiny Gunaratnam, eða Khamzy, er varaborgarstjóri Oslóar. Hún kom hingað til lands til að afhenda Reykvíkingum formlega Oslóartréð i í dag. Áður en hún gerði það kom hún við í minningarlundi um fórnarlömb hryðjuverkaárásarinnar í Útey við Norræna húsið.

Sjálf var hún stödd í Útey 22. júlí 2011, þá 23 ára, þegar Breivik myrti þar fjölda ungmenna sem voru í sumarbúðum ungliðahreyfingar verkamannaflokksins í eyjunni. Hún segir minningarlundi eins og þann sem er við Norræna húsið skipta máli.

„Þetta er mjög hjartnæmt, þetta er tákn um tengslin á milli Noregs og Íslands, á milli Oslóar og Reykjavíkur. Þetta var hryðjuverkaárás sem varð 77 manns að bana og trén hérna eru tákn fyrir hvert mannslíf,“ segir Khamzy.

„Ég fór að starfa í stjórnmálum eftir þetta og það er mikilvægt fyrir okkur að sýna að það eru mannslíf í húfi að við fáum betra samfélag þar sem enginn fellur frá.“

Hún segir áhrif voðaverkanna sjást hvað best á samfélagsumræðunni í Noregi sem sé opnari nú en áður.

„Ég held að fleiri nýti sér tjáningarfrelsið, fleiri taka þátt í samfélaginu og þetta er mikilvægt og gott merki og ég er ótrúlega stolt af norska samfélaginu.“

Khamzy segir marga af þeim sem voru í Útey taka þátt í stjórnmálum í dag.

„Við viljum gera breytingar, við viljum skipta máli. Stjórnmálin eru mikilvægari en nokkru sinni fyrr.“

Þá segir hún reglulegar fréttir sem berast af Breivik úr fangelsinu hafa lítil áhrif á sig í dag.

„Ég hef mikla trú á tjáningarfrelsinu, ég trúi ekki á ritskoðun. Breivik er í fangelsi, við erum úti og við höfum frelsið og það er mikilvægara fyrir mig.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×