Lífið

Opnar sig um sjálfsmyndatöku

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Kim Kardashian elskar fátt meira en sjálfsmyndir.
Kim Kardashian elskar fátt meira en sjálfsmyndir. vísir/getty
Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian opnaði sig um sjálfsmyndatökuæði sitt á dögunum. „Það eru svo margir sem finnst sjálfsmyndataka fáránleg. Mér finnst þetta bara gaman og ég elska að taka myndir og setja þær á netið, til þess að varðveita minningar,“ segir hún og bætir við:

„Ég er eiginlega að segja þessu fólki, já þetta er asnalegt, en þetta er bara til gamans gert.“ Öllu gríni fylgir þó einhver alvara en Kim mun gefa út bók með sjálfsmyndum af sér sem kemur út í vor, en þar má finna fyrstu sjálfsmyndina sem hún tók árið 1984.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×