Viðskipti innlent

Opinberar tölvupósta milli sín og Pálma - ekki hræddur við hann

Birgir Jónsson hætti sem forstjóri Iceland Express eftir 10 daga í starfi.
Birgir Jónsson hætti sem forstjóri Iceland Express eftir 10 daga í starfi. Mynd/Pjetur
„Ég er ekki fæddur í gær og hef langa reynslu af samskiptum við Pálma Haraldsson og er ekki hræddur við hann og hans fólk," segir Birgir Jónsson, fyrrum forstjóri Iceland Express, en hann sagði upp störfum í gær eftir einungis tíu daga í starfi.

Í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum í morgun segist hann knúinn til að tjá sig um yfirlýsingu stjórnar Iceland Express í gærkvöldi. Í henni sagði að Birgir hafi viljað ráða vini sína og ættingja inn í fyrirtækið.

„Þegar á mann er ráðist með svona ómaklegum, ódýrum og ósönnum hætti þá verður maður að snúast til varnar og verja heiður sinn og sinna," segir Birgir í yfirlýsingunni.

Í yfirlýsingunni lætur hann fylgja samskipti sín við Pálma Haraldsson, stjórnarformann fyrirtækisins, um að ráða konu sína til starfa. „Ég áframsendi því hér með póstsamskipti á milli mín og Pálma Haraldssonar frá síðust helgi þar sem hann lýsir sig samþykkan ráðningunni , bætti svo reyndar við þeim orðum á stjórnarfundi í London að "það finnist ekki frambærilegri kona á landinu til að gegna þessar stöðu". Engin ákvörðun hafði þó verið tekin af hennar hálfu um að koma til starfa," segir Birgir í yfirlýsingunni.

Hægt er að lesa yfirlýsinguna í heild sinni hér fyrir neðan og tölvupóstsamskipti Birgis og Pálma Haraldssonar:

Góðan dag,

Stjórn Iceland Express hefur sent frá sér yfirlýsingu um ástæður þess að ég sagði óvænt upp störfum hjá félaginu í gær. Í henni tilgreina þeir að þeir hafi ekki viljað samþykkja að ég gerði skipulagsbreytingar á fyrirtækinu sem fælu m.a. í sér að ég réði "vini mína og ættingja" til starfa hjá félaginu. Þeir "leka" svo til fréttastofu RÚV í morgun að um hefði verið að ræða tillögu mína um að ráða inn sambýliskonu mína í starf hjá fyrirtækinu, eitthvað sem þeir hafi ekki getað samþykkt.

Ég hef tekið skýrt fram að ég muni ekki tjá mig frekar um þetta mál í fjölmiðlum enda er það ekki til framdráttar fyrir neinn aðila, allra síst Iceland Express, sem mér er mjög umhugað um að skaðist ekki af þessar deilu.

Samt er það þannig að þegar á mann er ráðist með svona ómaklegum, ódýrum og ósönnum hætti þá verður maður að snúast til varnar og verja heiður sinn og sinna.

Ég áframsendi því hér með póstsamskipti á milli mín og Pálma Haraldssonar frá síðust helgi þar sem hann lýsir sig samþykkan ráðningunni , bætti svo reyndar við þeim orðum á stjórnarfundi í London að "það finnist ekki frambærilegri kona á landinu til að gegna þessar stöðu". Engin ákvörðun hafði þó verið tekin af hennar hálfu um að koma til starfa.

Ég ítreka enn og aftur að ég vil ekki aðhafast neitt sem mun skaða félagið en hins vegar er rétt að minna alla á að ég er ekki fæddur í gær og hef langa reynslu af samskiptum við Pálma Haraldsson og er ekki hræddur við hann og hans fólk. Því eru öll atriðin sem við deilum um til með skriflegu samþykki hans og ég mun ekki hika við að verja hendur mínar og birta þau ef það reynist nauðsynlegt. Þó það sé einlæg ósk mín að þess gerist ekki þörf.

Birgir Jónsson

ATH: Ég hef þurrkað út samskipti okkar PH um aðrar mögulegar mannabreytingar í þessum póstum til að virða trúnað við hlutaðeigandi aðila.

________________________________________

From: Palmi Haraldsson ]

Sent: Saturday, September 24, 2011 8:10 PM

To: Birgir Jónsson

Subject: RE:

Biggi þú færð sama svar

Ég treysti XXXXXX fullkomlega. Það þurfa einfaldlega að koma nýjir vendir sem

sópa best.

Ég mun ekki vera mótfallinn því að taka XXXXX inn

Kv

palmi

-----Original Message-----

From: Birgir Jónsson [mailto:BirgirJ@icelandexpress.is]

Sent: 24. september 2011 21:07

To: Palmi Haraldsson

Subject: RE:

Svo ég segi þér líka eins og er, þá vil ég fá XXXXXX þarna inn yfir crewið,

þjónustu um borð og raunar til að sameina customer service í öllu félaginu

í samvinnu við viðkomandi stjórnendur.

Tengja það saman við skilaboðin úr markaðsvinnu ofl. Þannig að farþegarnir

séu að upplifa heildar "experience" þegar þeir komast í snertingu við

okkur.

Það sem böggar mig er það að hún er auðvitað konan mín og ég vil ekki fá

neinn klíkustimpil.

Hins vegar má heldur ekki sleppa besta fólkinu bara út af svona tengslum.

Ef fólk sæi hennar prófíl á blaði án nafns þá er no brainer að fá hana

þarna inn:

Hún er með:

MBA með áherslu á mannauð og customer service

BA í ferðamálafræði

20 ára reynslu úr flugheiminum

Fyrirverandi yfirfreyja IEX sem þekkir IEX mjög vel.

Eini mínusinn er að hún er konan mín.

Á ég að láta það stoppa það?

Það er eiginlega eitthvað sem þú þarft að ákveða, þetta stendur of nálægt

mér.



Biggi

________________________________________

From: Palmi Haraldsson ]

Sent: Saturday, September 24, 2011 7:22 PM

To: Birgir Jónsson

Subject:

Sæll

Gagnvart þessu XXXXXX-máli þa er það þannig að ef þú treystir honum í þetta

þá er það hið besta mál

kvpalmi





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×