Innlent

Opið í Bláfjöllum

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Í Bláfjöllum í mars.
Í Bláfjöllum í mars. Vísir/Vilhelm
 Í dag er opið í Bláfjöllum frá klukkan tíu til fimm.  „Hér er sumarveður, hiti við frostmark, 6 m/sek og hálfskýjað,“ segir í tilkynningu frá framkvæmdastjórn skíðasvæðisins. Í gær var lokað vegna hvassviðris. Samkvæmt upplýsingum frá Bláfjöllum er gott færi í troðnum brautum en hart utanbrauta eins og gefur að skilja þegar svæðið hefur verið lokað. 



Opnunardagar voru ekki margir í Bláfjöllum í vetur þrátt fyrir góð snjóalög.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×