Innlent

Önnur verkfallslota hafin hjá læknum

Læknar á lyflækningasviði Landspítalans og á sjúkrahúsinu á Akureyri lögðu niður störf á miðnætti og stendur verkfall þeirra í tvo sólarhringa. Lyflækningasviðið er umfangsmesta sviðið á Landsspítalanum.

Læknar, sem hófu verkfall aðfararnótt sunnudags á heilsugæslum og á kvenna-rannsókna- og barnasviði Landsspítalans, eru aftur komnir til starfa.

Verkfallið núna nær til 160 lækna, þar af 50 lækna á Akureyri, Mikið ber í milli deilenda og er hvorug fylkingin bjartsýn á lausn í bráð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×