Ólína: Búinn að vera mikill tilfinningarússibani Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. júlí 2013 18:48 Mynd / Daníel
Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir var í byrjunarliði íslenska liðsins í fyrsta sinn á EM þegar stelpurnar töpuðu 0-4 á móti Svíum í átta liða úrslitunum. Ólína var besti maður íslenska liðsins í leiknum en það dugði ekki til. „Við erum stoltar þrátt fyrir að við höfum tapað stórt. Það er svekkjandi að tapa svona og ég hugsa að það sé ákveðið spennufall í leikmönnum núna og maður er pínulítið tómur eftir allt saman. Þetta er búinn að vera mikill tilfinningarússibani," sagði Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir. „Við getum gengið sáttar frá mótinu á heildina litið þótt að þessi úrslit í dag séu svekkjandi og alltof stórt tap," sagði Ólína. „Við slitnuðum alltof mikið í upphafi og vorum ekki að halda skipulaginu sem við lögðum upp með. Þegar það gerist á móti svona liðið þá bara refsa þær. Þær sögðu það fyrir leikinn að þær ætluðu að taka langskotin því þær eru með flotta skotmenn. Þær gerðu það því fyrsta markið kemur með langskoti," sagði Ólína. „Það heppnaðist allt sem þær lögðu upp með í dag. Þær voru ákveðnari í byrjun en við náðum að þjappa okkur saman og klára þetta betur," segir Ólína. „Við reyndum okkar besta en það gekk bara ekki upp. Ég held að flestir leikmenn séu hálftómir eftir þennan leik. Við gáfum allt sem við áttum en þær voru betri í dag. Við hlupum og börðumst og reyndum að gera okkar besta. Nú er mótið búið, þetta er búið að vera mikil spenna og frábært mót. Það er í raun svolítið spennufall sem kemur núna. Við þurfum smá tíma til að jafna okkur eftir þetta," sagði Ólína.
Mest lesið Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Fleiri fréttir Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Sjá meira