Innlent

Öldrunarráð Íslands afhenti styrki til fjögurra verkefna

Atli Ísleifsson skrifar
Ólöf, Álfhildur, Hallveig, Margrét og Pétur Magnússon, formaður ÖRÍ.
Ólöf, Álfhildur, Hallveig, Margrét og Pétur Magnússon, formaður ÖRÍ.
Stjórn Öldrunarráðs Íslands (ÖRÍ) veitti í dag fjóra styrki úr styrktarsjóði ráðsins vegna verkefna í öldrunarmálum. Afhending styrkjanna fór fram á Hrafnistu í Reykjavík.

Í tilkynningu segir að eftirfarandi verkefni hafi hlotið styrk:

„Álfhildur Hallgrímsdóttir hlaut styrk fyrir verkefnið „Aksturslok aldraðra“. „Álfhildur er starfsmaður Færni- og heilsumatsnefndar höfuðborgarsvæðisins og nemi í öldrunarfræðum við Háskóla íslands. Markmið rannsóknar Álfhildar er að kanna upplifun aldraðra, 80 ára og eldri, sem látið hafa af akstri bifreiðar, á því hvort og þá hvaða áhrif aksturslokin hafa haft á lífsvenjur þeirra. Styrkupphæð kr. 75 þús.“

Ólöf Árnadóttir hlaut styrk fyrir verkefnið „Hlýtt úti- hjólastólagallinn“. Ólöfer grafískur hönnuður sem meðal annars hefur hannað nýja tegund útivistargalla fyrir aldraða sem auðvelt er að klæðast, jafnvel þótt viðkomandi sé bundinn við hjólastól. „Hugmyndin kviknaði við umönnun hennar við aldraða foreldra sína með heilabilun. Ólöf hefur lokið við frumhönnun hlífðarfatnaðarins sem auðvelt er að klæðast og er ætlað að gera öldruðum betur kleift að njóta útivistar allan ársins hring. Styrkupphæð kr. 75 þús.“ 

Margrét Guðnadóttir hlaut styrk fyrir verkefnið „Samvinna starfsmanna í samþættri hjúkrunar- og félagsþjónustu“. „Margrét er hjúkrunarfræðingur og teymisstjóri í hjúkrun hjá Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis í Reykjavík hlaut styrk til að vinna meistaranámsrannsókn við HÍ þar sem ætlunin er að varpa skýrara ljósi á eðli samvinnu milli starfsfólks hjúkrunar- og félagslegrar heimaþjónustu þar sem slík þjónusta hefur verið samþætt. Er markmiðið að komast að því í hverju samvinnan felst, skilgreina einstaka þætti hennar og hvort hægt sé að leggja mat á þá. Styrkupphæð kr. 100 þús.,“ segir í tilkynningunni.

Þá hlaut Hallveig Skúladóttir styrk fyrir verkefnið „Heilsufar, færni og þjónustuþörf einstaklinga sem njóta þjónustu heimahjúkrunar“. Hallveig er meistaranemi við heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri. „Markmið rannsóknarinnar er að skoða heilsufar og færni einstaklinga sem njóta þjónustu heimahjúkrunar, annars vegar á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi og hins vegar á Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki, auk þess að skoða vísbendingar um þjónustuþörf. Styrkupphæð kr. 150 þús.“

Sjóðurinn afhendir árlega styrki á afmælisdegi Gísla Sigurbjörnssonar, stofnanda og forstjóra Grundar, en hann var aðalhvatamaður að stofnun sjóðsins




Fleiri fréttir

Sjá meira


×