Fótbolti

Ólafur og félagar fjarlægjast fallið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ólafur Ingi í landsleik.
Ólafur Ingi í landsleik. vísir/stefán
Lið Ólafs Inga Skúlasonar, Genclerbirligi, nældi sér í afar mikilvæg stig í tyrkneska boltanum í kvöld.

Þá vann liðið útisigur, 0-1, á Kasimpasa. Irfan Kahveci skoraði eina mark leiksins.

Með sigrinum færðist liðið enn frekar frá falli en liðið er engu að síður í sætinu fyrir ofan fallsæti. Það eru átta stig í fallið núna.

Ólafur Ingi lék allan leikinn á miðjunni hjá sínu liði í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×