Lífið

Ólafur Darri heimsækir litla stúlku á sjúkrahús

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikarinn Ólafur Darri Ólafsson, sem einnig er góðvinur UNICEF, kynnti sér starf samtakanna á Madagaskar fyrr á árinu.

Eins og sést á meðfylgjandi myndbandi heimsótti leikarinn meðal annars næringarspítala sem styrktur er af UNICEF. Á spítalanum kynntist Ólafur Darri lítilli stúlku, Estelle, sem hafði fengið meðferð við vannæringu. Estelle hafði meðal annars fengið næringarmjólk en mjólkin er önnur vinsælasta, sanna gjöfin frá UNICEF þessi jólin.

Estelle er á batavegi og náðu þau Ólafur Darri afar vel saman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×