Innlent

Ólafur Áki ráðinn sveitastjóri Vopnafjarðarhrepps

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Ólafur Áki Ragnarsson
Ólafur Áki Ragnarsson
Ólafur Áki Ragnarsson hefur verið ráðinn sveitastjóri Vopnafjarðarhrepps. Alls sóttu nítján um starfið en tveir drógu umsóknir sínar tilbaka. Þetta kemur fram á vef Vopnafjarðarhrepps.

Þar segir að Capacent hafi unnið úr umsóknum og að fyrirtækið hafi haft umsjón með úrvinnslu málsins. Þótti Ólafur uppfylla vel allar þær hæfniskröfur sem settar voru.

Á vef Vopnarfjarðar segir einnig:

Sem fyrr greinir á Ólafur Áki að baki farsælan feril í sveitarstjórnarmálum, en hann var sveitarstjóri Búlandshrepps/Djúpavogshrepps í sextán ár og bæjarstjóri í sveitarfélaginu Ölfusi í átta ár. Síðastliðin fjögur ár hefur hann starfað hjá Þróunarfélagi Austurlands og síðar Austurbrúar ses og séð þar m. a. um málefni sveitarfélaga á Austurlandi. Hann hefur því yfirgripsmikla þekkingu og reynslu af málefnum sveitarfélaga og er gjörkunnugur atvinnusvæði Austurlands. 

Ólafur Áki hefur jafnframt setið í  fjölmörgum nefndum og ráðum og má þar meðal annars nefna setu hans í stjórn Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi, samgöngu- og stóriðjunefnd á vegum Sambands sveitarfélaga á Austurlandi og stjórn Héraðsskjalasafns Austurlands. Hann hefur jafnframt setið í fulltrúaráði Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Er Ólafur Áki hér með boðinn velkominn til starfa með von um góða daga á Vopnafirði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×